Síldarvinnslan hagnast um 6,2 milljarða - 1,9 milljarðar í arð

Rekstur Síld­ar­vinnsl­unnar hefur gengið vel und­an­farin ár, og árið í fyrra var engin und­an­tekn­ing.

Hagnaður Síld­ar­vinnsl­unnar í fyrra nam 6,2 millj­örðum króna, og var ákveðið á aðal­fundi félags­ins í gær að greiða 15 millj­ónir Banda­ríkja­dala til hlut­hafa, en miðað við núver­andi gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal, nemur það um 1,9 millj­örðum króna.

Óhætt er að segja að Síld­ar­vinnslan standi afar vel fjár­hags­lega og má segja að árið í fyrra hafi verið í takt við afar gott gengi á síð­ustu árum, sem meðal ann­ars var til umfjöll­unar í frétta­skýr­ingu Kjarnans árið 2014.

Rekstr­ar­tekjur sam­stæð­unnar á árinu 2015 voru alls 27 millj­arðar króna og rekstr­ar­gjöld námu 18,9 millj­örðum króna. EBITDA var 8,2 millj­arðar króna. Fjár­magnsliðir voru jákvæðir um 410 millj­ónir króna. Hagnaður sam­stæð­unnar fyrir reikn­aða skatta nam 7,6 millj­örðum króna. Reikn­aður tekju­skattur nam 1.420 millj­ónum króna og var hagn­aður árs­ins því 6,2 millj­arðar króna, eins og áður sagði.

Á árinu 2015 greiddi Síld­ar­vinnslan og starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins 5,1 millj­arð króna til hins opin­bera. Greiddur tekju­skattur er 1.240 millj­ónir króna og veiði­gjöld voru tæp­lega 900 millj­ónir. Á meðal gjalda sem greidd voru á árinu eru 82 millj­ónir króna í stimp­il­gjöld vegna kaupa fyr­ir­tæk­is­ins á Beiti NK og 100 millj­ónir króna í kolefnis- og raf­orku­gjald, segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Samtals námu fjár­fest­ingar félags­ins 5,4 millj­örðum króna og voru þær þáttur í að auka verð­mæta­sköpun félags­ins ásamt því að bæta aðbúnað og öryggi starfs­manna. Helstu fjár­fest­ing­arnar voru kaup á nýju upp­sjáv­ar­veiði­skipi frá Danmörku, Beiti NK 123. Skipið var smíðað árið 2014 og ber 3.200 tonn. „Eins var haldið áfram á braut upp­bygg­ingar í upp­sjáv­ar­vinnslu félags­ins. Reist var við­bygg­ing austan við fisk­iðju­verið og er sú bygg­ing liður í að auka afköst vinnsl­unnar í 900 til 1.000 tonn á sól­ar­hring,“ segir á vef Síld­ar­vinnsl­unnar.

Hjá sam­stæðu Síld­ar­vinnsl­unnar störf­uðu 334 til sjós og lands um síð­ustu ára­mót. Launa­greiðslur félags­ins voru rúmar 4,1 millj­örðum króna á árinu 2015 en af þeim greiddu starfs­menn 1.370 millj­ónir í skatta, segir á vef Síld­ar­vinnsl­unnar.

Heild­ar­eignir sam­stæð­unnar í árs­lok 2015 voru bók­færðar á 54,4 millj­arða króna. Veltu­fjár­munir voru bók­færðir á 9,1 millj­arða króna og skuldir og skuld­bind­ingar sam­stæð­unnar námu 20,7 millj­örðum króna. Eigið fé sam­stæð­unnar í árs­lok var 33,7 millj­arðar króna. Í árs­lok var eig­in­fjár­hlut­fall sam­stæð­unnar 62 pró­sent.

Þar var stjórn félags­ins end­ur­kjörin að öðru leyti en því að Frey­steinn Bjarna­son hvarf úr henni en Guð­mundur Rafnkell Gíslason var kjör­inn í hans stað. Frey­steini voru þökkuð góð störf í þágu Síld­ar­vinnsl­unnar en hann hefur átt sæti í stjórn­inni frá árinu 2005.

Eft­ir­talin voru kjörin í stjórn­ina á aðal­fund­inum í gær. Anna Guð­munds­dóttir, Björk Þór­ar­ins­dóttir, Guð­mundur Rafnkell Gíslason, Ingi Jóhann Guð­munds­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son.

Helstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji (45% hlut­ur), Gjögur (34%) og SÚN í Nes­kaup­stað (11%).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár