Vöruskiptahallinn 96,4 milljarðar á fyrstu sex mánuðum ársins

Þrátt fyrir mik­inn halla þá dregur úr honum milli ára.

Í júlí 2018 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 50,5 millj­arða króna og inn fyrir 63,5 millj­arða króna. Vöru­við­skiptin í júlí voru því óhag­stæð um 13 millj­arða króna. Sé litið til fyrri helm­ings árs­ins í heild sinni þá voru vöru­skiptin óhag­stæð um 96,4 millj­arða króna, sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag.

Í júlí 2017 voru vöru­við­skiptin óhag­stæð um 20,7 millj­arða króna á gengi hvors árs.¹ Vöru­við­skipta­hall­inn í júlí 2018 var því 7,7 millj­örðum króna minni en á sama tíma árið áður.

Án skipa og flug­véla nam vöru­við­skipta­hall­inn í mán­uð­inum 15,1 millj­arði króna sam­an­borið við 20,1 millj­arð króna halla í júlí 2017.

Á tíma­bil­inu jan­úar til júlí 2018 voru fluttar út vörur fyrir 337,5 millj­arða króna en inn fyrir 433,9 millj­arða. Halli á vöru­við­skiptum við útlönd nam því 96,4 millj­örðum króna reiknað á fob verð­mæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöru­við­skiptin óhag­stæð um 105,8 millj­arða á gengi hvors árs, og því dregur lít­il­lega úr honum milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár