Fréttir

„Þetta eru tíð­indi“ í mál­efnum heim­il­is­lausra

Vel­ferð­ar­svið Reykja­víkur hefur sam­þykkt beiðni Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um samn­inga­við­ræður vegna þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk. Reykja­vík hefur borið hit­ann og þung­ann af þess­ari þjón­ustu og varið um millj­arði í hana það sem af er ári. Borgin hefur ítrekað kallað eftir því að fleiri sveit­ar­fé­lög komi að borð­inu.
Fréttir

Fjörutíu og þremur Palest­ínu­mönnum hefur verið vísað burt í ár

Þegar íslensk stjórn­völd taka efn­is­lega umfjöllun um umsóknir palest­ínsks flótta­fólks eru umsóknir þeirra sam­þykktar í lang­flestum til­fellum. Í ár hefur um helm­ingur umsókna verið afgreiddar með end­ur­send­ingu fólks til ann­arra Evr­ópu­ríkja; annað hvort á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar eða vegna þess að annað ríki hafi sam­þykkt að veita fólk­inu vernd.
Fréttir

Palest­ínskri fjöl­skyldu sem flúði Vest­ur­bakk­ann vísað frá Íslandi

Móður og börn­unum hennar sex var í nótt flogið á vegum íslenskra stjórn­valda til Spánar. Brott­vís­unin er fram­kvæmd á grunni Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar, sem heim­ilar íslenskum stjórn­völdum að vísa flótta­fólki til fyrsta við­komu­staðar þeirra í Evrópu. Fjöl­skyldan hefur enga vernd fengið á Spáni og býður mögu­lega ferða­lag aftur heim til Palest­ínu þar sem blóðug hern­að­ar­á­tök geisa.
FréttirLaxeldi

Arctic Fish um laxa­förgun í Tálkna­firði: „Fiski­vel­ferð í fyr­ir­rúmi hjá okkur“

Arctic Fish á Ísafirði seg­ist hafa fiski­vel­ferð í fyr­ir­rúmi eftir að birtar voru myndir af sár­ugum eld­is­löxum eftir lús í sjó­kvíum fyr­ir­tæk­is­ins í Tálkna­firði. Norskur eig­andi Arctic Fish segir að hækka þurfi stand­ar­dinn í rekstri Arctic Fish og kennir stjórn­völdum á Íslandi að hluta til um tjónið vegna laxa­förg­un­ar­innar.
Neytendur

Villandi mark­aðs­að­ferð að bjóða afslátt af áskrift í verð­laun í Facebook-leik um Friends

Vinn­ings­hafi í Facebook-leik Stöðvar 2 gat ekki nýtt sér vinn­ing, þriggja mán­aða áskrift að Stöð 2+, þar sem nauð­syn­legt er að vera í netá­skrift hjá Vodafone til að fá vinn­ing­inn. Stöð 2 bauð sára­bætur: 15 pró­sent afslátt af sjón­varps­á­skrift. Neyt­enda­stofa og Neyt­enda­sam­tökin segja um vill­andi mark­aðs­að­ferð að ræða.
Fréttir

„Ef ég heyrði þig rétt, sagðir þú árás?“

Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, segir það sem gerð­ist í Jabalia-flótta­manna­búð­unum á Gaza „skelfi­legt“ en að það hafi ekki verið árás heldur hafi Ísraelar verið að verja sig gegn hryðju­verka­mönnum. Mann­rétt­inda­skrif­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna telur loft­árás Ísraela á búð­irnar, þar sem um 200 manns féllu, geta verið stríðs­glæp.

Mest lesið undanfarið ár