RannsóknÍsland í mútum

Ban­eitrað sam­band á bæj­ar­skrif­stof­unum

Ásakanir um mútur, fjár­kúgun og fjár­svik hafa ítrekað komið upp í tengslum við bygg­ingu þriggja stærstu íþrótta­mann­virkja Kópa­vogs­bæjar. Verktaki sem fékk millj­arða verk hjá Kópa­vogsbæ greiddi fyrir skemmti­ferð maka og emb­ætt­is­manna bæj­ar­ins, sem mælt höfðu með til­boði verk­tak­ans. Fjársvika­kæra gegn honum og starfs­manni bæj­ar­ins var felld niður. „Það hefði átt að rann­saka þetta sem mútur,“ segir bæj­ar­full­trúi og furðar sig á með­ferð bæj­ar­stjóra á mál­inu, sem var ekki eins­dæmi.

23 mín. lestur

Fréttir

Ríkjum heims sé skylt að koma í veg fyrir þjóð­ar­morð

Tíu þing­menn þeirra á meðal Jódís Skúla­dóttir og Steinunn Þóra Árna­dóttir frá Vinstri grænum segja að rík­is­stjórn Íslands hafi látið hjá líða að for­dæma árásir Ísra­els­hers á Gaza. Þau vilja að utan­rík­is­ráð­herra geri það og kalli einnig eftir taf­ar­lausu vopna­hléi. Mann­rétt­inda­sér­fræð­ingar segja þjóð­ar­morð yfir­vof­andi á Gaza. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata segir ríkjum heims skylt að koma í veg fyrir þjóð­ar­morð.
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Formaður Brim­bretta­fé­lags Íslands um land­fyll­ing­una og Elliða: „Það blasir við að þetta er spill­ing“

Steinarr Lár, for­maður Brim­bretta­fé­lags Íslands, segir í umfjöllun í enska blað­inu The Guardian að hann telji að sveit­ar­fé­lagið Ölfuss sé að ganga erinda námu­fjár­festa í sveit­ar­fé­lag­inu út af fram­kvæmdum við nýja land­fyll­ingu. Hann segir að það angi af spill­ingu að Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri búi í húsi sem námu­fjár­fest­arnir eigi.
Greining

Graf­reitur þús­unda barna

Um fjögur þús­und palest­ínsk börn, hið minnsta, hafa dáið í loft­árásum Ísra­els­hers síð­ustu fjórar vikur. Leita þarf hálfa öld aftur í tím­ann til að finna slíkan fjölda barna sem drepin hafa verið í stríði á svo skömmum tíma. Um eitt þús­und börn eru talin vera föst undir rústum húsa. „Við erum að verða vitni að stríðs­glæpum af þeirri stærð­argráðu sem ekki hafa sést áður hér,“ segir tals­kona palest­ínska Rauða hálf­mán­ans.

9 mín. lestur

Greining

Tveir stjórn­ar­þing­menn ganga gegn afstöðu Bjarna – Óvissa um hver utan­rík­is­stefna Íslands er

Tveir þing­menn Vinstri grænna ætla að vera á meðal flutn­ings­manna á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að Ísland styðji vopna­hlé á Gaza, að rík­is­stjórnin for­dæmi árásir Ísra­els­hers á óbreytta borg­ara og á borg­ara­lega inn­viði Palest­ínu. Tillagan gengur þvert á afstöðu utan­rík­is­ráð­herra gagn­vart mál­inu. Það tók rík­is­stjórn­ina tæpar tvær vikur að koma sér á ný í skærur í kjöl­far þess að hún hélt blaða­manna­fund til að til­kynna um sættir.

9 mín. lestur

FréttirLaxeldi

Segir opin­berar stofn­anir hafa sofið á verð­inum í lax­eld­inu: „Algjört fúsk“

Arnór Björns­son, sem stofn­aði og rak lax­eld­is­fyr­ir­tækið Fjarða­lax fyrir rúmum ára­tug, seg­ist hafa varað opin­berar stofn­anir við laxa­lús í sjó­kvía­eldi en talað fyrir daufum eyrum. Engin við­mið um leyfi­legan fjölda lúsa á löxum í lax­eldi hafa verið til hér á landi, eins og í öðrum löndum, segir dýra­læknir. Stærsta umhverf­isslys vegna laxalúsar hefur átt sér stað í Tálkna­firði.

Mest lesið undanfarið ár