FréttirHvalveiðar

Kristján og Ralph tók­ust á – Báðir pólar á villi­götum

Óvæntur gestur mætti á erindi um mik­il­vægi hvala fyrir líf­ríki sjávar í Hörpu í lok októ­ber. Hann mót­mælti því sem hafði komið fram í erind­inu um kolefn­is­bind­ingu hvala. „Ég er sjálfur hval­veiði­maður,“ sagði mað­ur­inn – Kristján Loftsson – áður en hann full­yrti að hvalir gæfu frá sér tvö­falt meira magn af koltví­sýr­ingi en þeir föng­uðu.
Fréttir

Alþjóða­sam­fé­lagið sjái nú inn­an­mein rík­is­stjórnar Íslands

Gísli Rafn Ólafsson, þing­maður Pírata spurði Bjarna Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra á Alþingi í dag hvað þyrfti að ger­ast í Palest­ínu til að hann hætti að hamra á því að Ísraelar hefðu rétt til að verja sig. Bjarni sagði að eng­inn afsláttur væri veittur á því að virða bæri alþjóða­lög. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­kona Við­reisnar sagði að nú sæi allt alþjóða­sam­fé­lagið „inn­an­mein rík­is­stjórn­ar­innar.“
Fréttir

Síð­sann­leikur og sam­særi á Aust­ur­velli - „Klámið burt“

Mót­mæl­endur gegn kyn­fræðslu barna mættu enn stærri hópi sem taldi þá vega að mann­rétt­indum trans fólks. „Við vorum börn“ sagði trans maður með regn­boga­fána. Stjórn­mála­fræði­pró­fessor segir fólk farið að efast um stað­reyndir: „Fólk er ekki lengur bara að skipt­ast á skoð­unum heldur stendur deilan um hvað telj­ast vera stað­reyndir.“
Greining

Gjald­þrota útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins sótti um rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði

Þrátt fyrir að hafa farið í þrot í vor sótti Torg, sem gaf meðal ann­ars út Frétta­blaðið og hélt úti sjón­varps­stöð­inni Hring­braut, um styrk sem veittur er úr rík­is­sjóði til starf­andi frétta­miðla á einka­mark­aði. Umsókn Torgs var hafnað, en litlar eignir virð­ast til í þrota­búi félags­ins upp í kröfur. Rekstr­ar­styrk­ur­inn, hefði hann verið veittur, hefði farið í að greiða kröfur en ekki að styrkja einka­rekna fjöl­miðlun á Íslandi.
Skýring

Vilja ekki „fjög­urra akreina þjóð­veg“ í bak­garð­inn

Er nokk­urra mín­útna sparn­aður á ferða­tíma þess virði að raska nátt­úru, úti­vist­ar­svæðum og spilla útsýni þús­unda? „Það að leggja umferð­ar­mann­virki þvers og kruss um sundin blá er ekki smá­mál,“ segir íbúi í Graf­ar­vogi um áform­aða Sunda­braut. Margir vilja göng í stað brúa um við­kvæm­ustu svæðin en það hefur Vega­gerðin slegið út af borð­inu.
Fréttir

Forseti ASÍ segir rík­is­stjórn­ina firrta –„Þetta fólk deilir ekki lengur kjörum með almenn­ingi í land­inu“

Finn­björn A. Her­manns­son sagði í ræðu á föstu­dag að ekki yrði hjá því kom­ist að verka­lýðs­hreyf­ingin fjalli um spill­ing­una sem tröll­ríði stjórn­málum og fjár­mála­lífi hér á landi. Skyldur stjórn­mála­manna séu gagn­vart öðrum en almenn­ingi í land­inu. Framundan væri risa­vaxið verk­efni í bar­áttu við verð­bólgu, hús­næð­is­vanda, ójöfnuð og fúna inn­viði. Samstöðu þurfi til að takast á við það verk­efni.

Mest lesið undanfarið ár