Fréttir

Heim­il­is­laus með ígerð í báðum hand­leggjum - „Þú veist hvernig þetta er“

Njáll Skarp­héð­ins­son er þreyttur á því að vera heim­il­is­laus. Hann þráir að vera í stöðu til að hitta börnin sín og barna­börn, að bjóða þeim í heim­sókn. Nýverið bland­aði hann sér óvænt í mót­mæli á Aust­ur­velli þar sem fólk gaf honum pen­ing til að fara. Pen­ing­inn ætl­aði hann að nota til að kaupa dóp. „Ég er að verða örmagna,“ segir hann.
Fréttir

Yfir 70% Íslend­inga ósáttir við hjá­setu Íslands vegna vopna­hlés á Gaza

Mikill meiri­hluti Íslend­inga er ósáttur við að Ísland hafi setið hjá við atkvæða­greiðslu á þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um vopna­hlé á Gaza. Kjós­endur Mið­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks eru ánægð­astir með ákvörð­un­ina, kjós­endur Sós­í­alista og Pírata óánægð­astir. Tveir stjórn­ar­þing­menn eru með á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem verður lögð fram síðar í dag sem fer gegn ákvörðun utan­rík­is­ráð­herra.
1:13
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Átök um land­fyll­ing­una í Þor­láks­höfn: „Ég ætla að óska eftir fund­ar­hléi“

Meiri­hluti sveita­stjórn­ar­innar í Ölfusi og minni­hlut­inn tók­ust á um land­fyll­ing­una sem á að gera við strand­lengj­una í Þor­láks­höfn á fundi bæj­ar­stjórnar. Meðlimir úr Brim­bretta­fé­lagi Íslands voru með framíköll og mót­mæli og stöðv­aði Gestur Þór Krist­jáns­son, for­seti bæj­ar­stjórnar, fund­inn að lokum eftir að hafa skammað þá.
Viðtal

Er ég orðin geð­veik?

Konur vilja stundum ekki kann­ast við að vera með ein­kenni breyt­inga­skeiðs­ins. Sumar þjást í ein­rúmi og halda jafn­vel að þær séu að missa vitið. Hér er rýnt í ein­kennin og jafn­framt rætt við tvo sér­fræð­inga; Stein­unni Krist­björgu Zophoníasdóttur ljós­móður sem er sér­hæfð í breyt­inga­skeið­inu og líka Unni Önnu Valdi­mars­dóttur, aðal­rann­sak­anda lang­tíma­rann­sókn­ar­innar Áfalla­saga kvenna. Getur verið að konur með áfalla­sögu séu ber­skjald­aðri á breyt­inga­skeið­inu?

17 mín. lestur

Fréttir

„Ákaflega óheppi­legt“ að lög­reglu­stjóri segi óábyrgt að Bláa lónið sé opið

Fram­kvæmda­stjóri hjá Bláa lón­inu seg­ist ekki átta sig á því hvort lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hafi verið að tala fyrir hönd emb­ætt­is­ins eða bara sem ein­stak­lingur, er hann lýsti því yfir að hann teldi óábyrgt að halda lón­inu opnu. Þetta sé á skjön við önnur skila­boð sem borist hafi úr almanna­varna­kerf­inu, sem Bláa lónið hafi ákveðið að fylgja í einu og öllu.
Stjórnmál

Tvær til­lögur en samt skiptir máli „að þjóð eins og okkar tali einum rómi“

Tvær þings­á­lykt­un­ar­til­lögur hafa verið lagðar fram á Alþingi um átökin og ástandið fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Píratar, Sam­fylk­ing, Flokkur Fólksins og tveir þing­menn Vinstri grænna vilja að aðgerðir Ísra­els­hers í Palest­ínu verði for­dæmdar og kalla eftir taf­ar­lausu vopna­hléi af mann­úð­ar­á­stæðum. Á sama tíma leggur Viðreisn fram ályktun sem er sam­hljóða breyt­ing­ar­til­lögu Kanada á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna.
Fréttir

Búnaður til að tryggja hita­veitu á Reykja­nesskaga ekki til í land­inu

Ekki er til­tækur nægi­legur bún­aður hér á landi sem þyrfti til að tryggja hita­veitu á Reykja­nesskaga raun­ger­ist dekkstu sviðs­myndir í tengslum við jarð­hrær­ingar á Reykja­nesskaga. Orku­mála­stjóri segir að ríkið þurfi að taka afstöðu til kaups og/eða leigu á bún­aði sem tengj­ast rekstri hita­veitu á svæð­inu eins skjótt og auðið er.

Mest lesið undanfarið ár