FréttirRannsóknin á Davíð og Pho Vietnam

Vís­bend­ingar um að fólk hafi búið í mat­væla­geymsl­unni – „Lifandi og dauðar rottur og mýs “

Ummerki voru um að fólk hafi búið í kjall­ar­anum að Sóltúni 20, þaðan sem tonnum af ónýtum mat­vælum var fargað í haust. Þrifa­fyr­ir­tækið Vy-þrif sem var með kjall­ar­ann á leigu hafði ekki starfs­leyfi til að geyma mat­væli. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins hefur einnig rekið veit­inga­keðj­una PhoVi­etnam og á 40% hlut í Wok On Mathöll. Þá keypti hann gamla Herkast­al­ann á hálfan millj­arð fyrir tæpum tveimur árum.
Skóli lífsins

Ragnhildur Sverrisdóttir

End­ur­unnir for­dómar

Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, bar­áttu­kona og „Ukulella“, hefur lært að auð­velt er að vekja ótta og for­dóma og að alltaf finn­ast ein­hverjir sem eru til­búnir til að koma í veg fyrir mann­rétt­indi minni­hluta­hópa. „Viljið þið láta nota ykkur til að færa mann­rétt­indi aftur um ára­tugi? Gætið ykkar, því slík rétt­inda­skerð­ing gæti hitt ykkur sjálf og ást­vini ykkar fyrir.“
Fréttir

Sam­ein­ast um til­lögu utan­rík­is­mála­nefndar

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata segir til­lögu utan­rík­is­mála­nefndar um við­brögð við ástand­inu fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs senda skýr skila­boð til ráð­herra og alþjóða­sam­fé­lags­ins um stöð­una og okkar afstöðu. Píratar og Viðreisn styðja til­lög­una og hafa dregið sínar þings­á­lykt­un­ar­til­lögur um við­brögð við ástand­inu á svæð­inu til baka.
Fréttir

Þurfi fag­lega en ekki póli­tíska umræðu um fjöl­miðla­styrki

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands segir „ósk­andi að stjórn­mála­menn gætu sam­mælst um að taka umræð­una um fjöl­miðla og blaða­mennsku upp úr skot­gröfum póli­tískra deilna.“ Henni finnst athuga­vert að Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata, hafi í ræðu um fjár­mál borg­ar­innar tengt saman fjöl­miðla­styrki frá rík­inu og svo efn­is­tök ein­stakra fjöl­miðla.

Mest lesið undanfarið ár