Mótmæli Íbúar í Mjølnerpar­ken á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn, sem er eitt þeirra hverfa sem áætl­unin nær til, hafa mót­mælt því harð­lega að vera neydd til að selja og flytja. Mynd: AFP

Þúsundir fjölskyldna neyddar til að flytja úr dönskum „vandræðahverfum“

Á næstu árum verða þús­undir fjöl­skyldna búsettar í svoköll­uðum „gettóum“ nokk­urra borga Dan­merkur neyddar til að flytja. Þetta er ákvörðun dönsku rík­is­stjórn­ar­innar sem vill upp­ræta ,„vand­ræða­hverfin“.

Allvíða í Danmörku hafa á und­an­förnum ára­tugum orðið til hverfi þar sem hlut­fall inn­flytj­enda og afkom­enda þeirra er mun hærra en í öðrum hverfum. Iðulega spunn­ust um það umræður í fjöl­miðlum og á þingi að óæski­legt væri að í borgum og bæjum væri að finna eins­konar  hlið­ar­sam­fé­lag eða vand­ræða­hverfi, eins og kom­ist var að orði.

Í ára­móta­ræðu árið 2004 fór Anders Fogh Rasmus­sen mörgum orðum um þá óheilla­þróun, eins og hann orð­aði það, að slík hlið­ar­sam­fé­lög fest­ust í sessi í Danmörku „hér eiga allir að til­heyra sama sam­fé­lag­inu“. Í fjöl­miðlum mátti lesa að margir væru þessu sam­mála en þrátt fyrir það hefur þessum hlið­ar­sam­fé­lögum fjölgað og þau jafn­framt stækkað í hlut­falli við fjölgun inn­flytj­enda sem komið hafa til lands­ins.

Gettó

Orðið gettó, sem fyr­ir­finnst í mörgum tungu­málum, iðu­lega skrifað ghetto, er alda­gam­alt. Upp­runinn er óljós en eitt elsta dæmi um slíkt hverfi er frá 11. öld, í Prag. Eftir miðja 15. öld varð til í Frank­furt hverfi gyð­inga og slíkt hverfi varð til í Feneyjum árið 1516, gyð­ingum hafði fram til þess tíma ekki verið heim­ilt að búa í borg­inni en fengu nú heim­ild til að búa í sér­stöku hverfi í borg­inni, með ströngum skil­yrðum. Árið 1692 lagði lög­reglu­stjór­inn í Kaup­manna­höfn til að sér­stakt gyð­inga­hverfi yrði til í borg­inni, sú hug­mynd náði aldrei lengra. Á árum síð­ari heims­styrj­aldar stofn­uðu þýsku nas­ist­arnir fjöl­mörg gyð­inga-gettó í löndum Austur-Evrópu.

Nú er notkun orðs­ins gettó ekki bundin við hverfi gyð­inga, merk­ingin á við eins­konar hlið­ar­sam­fé­lag, hverfi þar sem fólk af sama upp­runa býr og mann­lífið lýtur á ýmsan hátt öðrum lög­málum en ann­ars gilda.

Fyrst notað í Danmörku árið 1964

Í grein sem birt­ist í dag­blað­inu Berl­ingske Tidende árið 1964 sást orðið gettó (ghetoo) í fyrsta sinn á prenti í Danmörku. Greinin fjall­aði um hverfi í Sviss, þar sem erlent verka­fólk (gæste­ar­bejdere) bjó. Í skýrslu sem unnin var fyrir stjórn­völd um aðstæður erlends verka­fólks og birt var árið 1976 var sér­stak­lega talað um afmark­aða bæj­ar­hluta á Aust­ur­brú, Vest­ur­brú og Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn.

Þar væri greini­leg gettótil­hneig­ing, húsa­leiga lág og íbúðir litlar og iðu­lega í lélegu ástandi. Á síð­ustu tveimur ára­tugum síð­ustu aldar jókst notkun orðs­ins gettó um svæði þar sem hlut­fall íbúa af erlendu bergi brotið var hátt, þetta átti ekki hvað síst við um hverfin vestan Kaup­manna­hafnar. 

Mistök

Um og eftir miðja síð­ustu öld fjölg­aði útlend­ingum sem fluttu til Dan­merkur í atvinnu­leit, í þeim hópi voru Tyrkir fjöl­menn­astir. Heppi­legt þótti að inn­flytj­endur af sama þjóð­erni byggju á sama svæði, þannig gætu þeir hjálpað hver öðrum á meðan þeir væru að koma sér fyrir.

Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur sagði í sam­tali við grein­ar­höf­und, að þetta fyr­ir­komu­lag hafi verið mikil mis­tök, það hefði komið í ljós síðar. Með þessu fyr­ir­komu­lagi urðu til hverfa­kjarnar, þar sem íbú­arnir umgeng­ust nær enga aðra en landa sína, héldu sínum siðum og lærðu aldrei dönsku. Mörg dæmi eru um inn­flytj­endur sem búið hafa í Danmörku í ára­tugi en tala varla stakt orð í dönsku.

Áætlun til að sporna gegn gettómyndun

Árið 2010 kynnti Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hug­myndir og vilja rík­is­stjórn­ar­innar til að sporna gegn „gettómyndun“ eins og ráð­herr­ann komst að orði. Ekki hafði fram að þessu verið til skil­grein­ing á því hvað gettó væri en nú hafði rík­is­stjórnin látið vinna slíka grein­ingu. Fimm atriði voru til­greind og ef þrjú eða fleiri þeirra eiga við um til­tekið hverfi flokk­ist það sem gettó.

  1. Meira en 40 pró­sent íbúa á aldr­inum 18 til 64 ára eru án atvinnu og stunda ekki nám.
  2. Hlutfall inn­flytj­enda og afkom­enda þeirra er meira en 50 pró­sent.
  3. Þrjú pró­sent íbúa, 18 ára eða eldri, hafa brotið lög um vopna­burð og eða lög um fíkni­efni.
  4. Helm­ingur íbúa á aldr­inum 30 – 59 ára er án lág­marks­mennt­unar.
  5. Laun fólks á aldr­inum 15 – 64 ára, sem ekki stundar nám, ná ekki 55 pró­sentum með­al­launa sam­svar­andi hóps á sama atvinnu­svæði.

Þessi skil­grein­ing hefur verið notuð, lítið breytt, í 23 ár. Árið 2021 var að mestu leyti hætt að nota orðið gettó, í stað­inn notað „parall­el­sam­fund“ (hlið­ar­sam­fé­lag) eða „udsat område“ (við­kvæmt svæði). Rökin fyrir þess­ari breyt­ingu voru þau að í orð­inu gettó fælist röng eða nei­kvæð merk­ing. Stærstu hverfin sem falla undir þessar skil­grein­ingar eru í Kaup­manna­höfn, Árósum og Óðins­véum.

Flytja íbúa og rífa blokkir

Rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen féll í þing­kosn­ingum 2011 og við tók stjórn Helle Thorning-Schmidt. Eftir þing­kosn­ing­arnar 2015 tók stjórn undir for­ystu Lars Løkke Rasmus­sen aftur við, sú stjórn sat til 2019.

UmdeiltLars Løkke Rasmus­sen og sjö ráð­herrar í stjórn hans héldu frétta­manna­fund í Mjølnerpar­ken á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn vorið 2018 þar sem þeir kynntu áætlun um rót­tækar aðgerðir til að upp­ræta hlið­ar­sam­fé­lög og hamla gegn því að ný slík verði til.

Á fyrsta degi mars­mán­aðar 2018 héldu Lars Løkke Rasmus­sen og sjö ráð­herrar í stjórn hans frétta­manna­fund í Mjølnerpar­ken á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Á fund­inum kynntu ráð­herr­arnir áætlun um rót­tækar aðgerðir til að upp­ræta hlið­ar­sam­fé­lögin og hamla gegn því að ný slík verði til. Áætlunin var í 22 liðum.

Mesta athygli vöktu orð for­sæt­is­ráð­herr­ans um að hluta íbúa í hlið­ar­sam­fé­lögum yrði gert að flytja í annað hverfi og að hugs­an­lega þyrfti að rífa sumar íbúða­blokkir og breyta öðrum. Þannig yrði unnt að lækka hlut­fall íbúða í opin­berri eigu, eða í eigu bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­laga (þar sem inn­flytj­enda­fjöl­skyldur búa gjarna). Þetta myndi hafa í för með sér að þús­undir fjöl­skyldna yrðu að flytja, sumar gegn vilja sínum.

Danskir fjöl­miðlar hafa kallað þessa áætlun „mestu þjóð­fé­lags­til­raun ald­ar­innar“. Gagn­rýnendur sögðu þetta „þjóð­fé­lags­stefnu með jarð­ýtu“. Einnig vakti mikla athygli sú til­laga stjórn­ar­innar að strang­ari refs­ing, nánar til­tekið tvö­falt strang­ari, liggi við brotum sem framin séu í hlið­ar­sam­fé­lögum eða á svæðum sem lög­reglan til­greinir, en í öðrum hverfum eða bæj­ar­hlutum. Ekki skipti máli hvar sá brot­legi sé búsettur, heldur hvar brotið sé framið.  Þetta telja margir úti­lokað að geti stað­ist, refs­ing vegna brots sem framið sé í hlið­ar­sam­fé­lagi geti ekki verið strang­ari en vegna sams­konar brots í hverfi sem ekki telst hlið­ar­sam­fé­lag. Á fundi ráð­herr­anna í Mjølnerpar­ken kom fram að verk­efnið myndi taka nokkur ár, lík­lega allt til árs­ins 2030.

Þrjú þúsund íbúar Vollsmose þurfa að flytja

Stærsta hlið­ar­sam­fé­lag (gettó) Dan­merkur er í Vollsmose hverf­inu í Óðins­véum. Árið 2020 bjuggu þar um 9 þús­und manns, 82 pró­sent íbú­anna inn­flytj­endur eða afkom­endur þeirra og 76 pró­sent þeirra frá löndum utan Vest­ur­landa. Í hverf­inu bjó fólk frá 80 löndum og 52 pró­sent íbúa á aldr­inum 18- 64 ára voru hvorki í námi né vinnu.

Samkvæmt áætlun rík­is­stjórn­ar­innar verða um það bil eitt þús­und íbúðir jafn­aðar við jörðu og þrjú þús­und manns þurfa því að flytja annað, sumir ef til vill tíma­bundið en aðrir fyrir fullt og allt. Í stað þeirra þús­und íbúða sem hafa verið í eigu hins opin­bera eða íbúða­sam­taka (almene boli­ger) verða byggð ný hús þar sem að minnsta kosti 60 pró­sent íbúða verða í einka­eigu. Það er sam­kvæmt áætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Þegar þessar línur eru settar á blað hafa vel á fimmta hund­rað íbúðir verið tæmdar og rifnar niður.

Líkt við kynþáttamisrétti

Margir hafa orðið til að gagn­rýna „þjóð­flutn­inga rík­is­stjórn­ar­innar“ eins og sumir hafa kom­ist að orði. Evr­ópu­dóm­stólnum hafa borist fjöl­mörg erindi, þar sem kærendur líkja ákvörðun rík­is­stjórnar Dan­merkur við kyn­þátta­mis­rétti.

Sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna hafa mælt með að dönsk stjórn­völd fari sér hægt í að neyða fólk til flutn­inga og selja húsin til nið­ur­rifs. Nauð­syn­legt sé að fá úr því skorið fyrir dóm­stólum hvort ákvarð­anir stjórn­valda stand­ist lög áður en lengra er haldið. Eins og áður sagði er nið­ur­rifið í Vollsmose hafið og fjöldi fólks hefur þegar flutt annað.

Sumir fagna því að flytja en aðrir ekki

Danir eru ekki eina þjóðin sem glímt hefur við ýmis þau vanda­mál sem fylgja hlið­ar­sam­fé­lögum. Hvergi hefur þó verið gripið til við­líka aðgerða og í Danmörku. Ákvarð­anir dönsku rík­is­stjórn­ar­innar hafa vakið athygli  og um þær fjallað í fjöl­miðlum víða um heim. Banda­ríska stór­blaðið New York Times birti fyrir nokkrum dögum langa umfjöllun um málið undir yfir­skrift­inni „Denmark aims a Wrecking Ball at „Non Western“ Neighborhoods“ (Danmörk miðar brot­kúl­unni á útlend­inga­hverfi).

Blaða­mað­ur­inn Emma Bubola hitti fjöl­marga íbúa í stærstu hlið­ar­sam­fé­lögum Dan­merkur og innti eftir áliti þeirra á ákvörð­unum rík­is­stjórn­ar­innar. Svörin voru á marga vegu: Sumir lýstu ánægju með að flytja, sögð­ust ekki þora út fyrir húss­ins dyr eftir að skyggja tekur, aðrir voru ekki jafn ánægðir með að flytja.

Í við­tali við blaða­mann New York Times sagði sonur konu sem flutti frá Austur- Þýska­landi fyrir tæpum 40 árum móður sína hafa verið mjög ósátta við að þurfa að flytja. Hjón sem flýðu frá Íran fyrir ára­tugum sögðu í við­tali að greini­legt væri að litið væri á fólk eins og þau sem vanda­mál. „Við höfum búið hér í Gellerup parken í Árósum, alið upp tvö börn og aldrei lent í einu né neinu.“

Í Gellerup parken eru um 1.800 íbúðir, stærstur hluti íbú­anna inn­flytj­endur eða afkom­endur inn­flytj­enda. Samkvæmt áætlun rík­is­stjórn­ar­innar verða 400 þess­ara íbúða rifnar. Í Toves­højhverf­inu, skammt frá Gellerup parken stendur til að rífa 200 íbúðir af þeim 624 sem í hverf­inu eru. Í sumum hverfum sem skil­greind eru sem hlið­ar­sam­fé­lög, verður eign­ar­fyr­ir­komu­lag­inu breytt, þannig að í stað þess að íbúðir séu í eigu opin­berra félaga verði þær seldar ein­stak­lingum eftir til­teknum reglum.

Eins og nefnt var fyrr í þess­ari grein er gert ráð fyrir að verk­efn­inu sem miðar að því að upp­ræta hlið­ar­sam­fé­lögin verði lokið árið 2030. Hvort það gengur eftir er ókomið í ljós. Úrskurður Evr­ópu­dóm­stóls­ins, þegar og ef hann kemur, getur líka haft mikil áhrif.

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár