Virðing fyrir lesandanum óháð aldri

Rán Flygenring hlaut barna- og ung­linga­bóka­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs fyrir mynda­bók­ina Eldgos. Hún segir það „brjál­æð­is­lega gaman“ að hafa hlotið svona stór og virt verð­laun en það hafi sömu­leiðis komið henni dálítið á óvart. Rán er marg­verð­laun­aður höf­undur og teikn­ari.

Virðing fyrir lesandanum óháð aldri
Sjónrænn sprengi­kraftur Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs segir að mynda­bók Ránar Flygenring sé full af sjón­rænum sprengi­krafti um áhrifin sem villt og óhamin nátt­úra hefur á fólk. Mynd: Magnus Fröderberg, norden.org

„Mér fannst þetta mjög óvænt því ég upp­lifi bók­ina mína sem svo brjál­aða, villta, gróteska og fyndna,“ segir Rán Flygenring marg­verð­laun­aður teikn­ari og höf­undur um að hafa hlotið barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs og bætir við: „Það er geggjað mik­ill heiður að fá þessi verð­laun. Þetta er alveg brjál­æð­is­lega gaman. Ég svíf um á bleiku skýi.“ 

Bókin sem hún vísar í sem villta, brjál­aða og gróteska heitir Eldgos og er mynda­bók sem kom út í fyrra hjá Angústúru for­lagi. Hún segir að orðið „gróteskt“ lýsi til­finn­ing­unni sem hún upp­lifir þegar hún sjálf opnar bók­ina. „Hún er gróf og villt og það er svo mikið í gangi og teikn­ing­arnar eru svo­lítið úti um allt. Þannig hugsa ég um gróteskt,“ segir hún og hikar um stund. 

„Svo skil ég núna að gróteskt og villt passar bara mjög vel við eld­gos. Það er ein­hver sprengi­kraftur og ekk­ert sem heldur aftur af honum. …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár