FréttirJarðhræringar við Grindavík

Aflýstu brúð­kaup­inu vegna skjálft­anna - „Þetta var svo­lítið ömur­legt“

Ár er síðan Frank Bergmann bað Anitu Gurrý Frið­jóns­dóttur um að gift­ast sér og það ætl­uðu þau að gera á laug­ar­dag, þann 11.11. Þau tóku loka­æf­ingu í kirkj­unni á föstu­dag og allt var til reiðu. „Við vorum öll orðin svo spennt,” segir Anita. Nú langar þau bara að kom­ast aftur heim til sín og vona að íbúðin þeirra sé ekki ónýt.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Pétur í Vísi: „Það er allt undir, heim­ilið þitt, æsku­slóðir, fyr­ir­tækið“

Pét­ur Páls­son, fram­kvæmda­stjóri Vís­is, stóð í ströngu við að tæma frysti­hús­ið í dag. Hann er í þeim spor­um að geta misst heim­il­ið og vinn­ustað­inn á svip­stundu, en seg­ir rekst­ur­inn smá­muni þegar sam­fé­lag­ið er í hættu. „Það þarf ekk­ert að fara mörg­um orð­um um það hvernig bæj­ar­bú­um líð­ur.“
4:38
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Myndbönd frá Grind­vík­ingum: Skjálftar, hrædd gælu­dýr, holur í vegum og við­brögð fólks

Myndbönd sem Grind­vík­ingar hafa birt á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga sýna nötr­andi hús, ótta­slegin gælu­dýr og sprungur á vegum. Mikil sam­staða ríkir um að veita fólki frá Grinda­vík aðstoð, en á tveimur dögum eru með­limir í hópnum Aðstoð við Grind­vík­inga orðnir 17 þús­und tals­ins.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Ekki full sátt um „for­varna­gjaldið“ á Alþingi

Nokkrir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn segj­ast mót­fallnir því að nýju „for­varna­gjaldi“ verði bætt við skatt­lagn­ingu af hús­eignum til að fjár­magna varn­ar­mann­virki vegna hraun­vár. Slíkt gjald yrði 8.000 krónur á ári af fast­eign sem er með bruna­bóta­mat upp á 100 millj­ónir króna. Búist er við því að frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga verði að lögum í kvöld.
0:32
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Sund­ur­skornir vegir í Grinda­vík

Eins og sjá má á mynd­skeiði frá ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar liggur sprunga yfir veg­inn til móts við lög­reglu­stöð­ina í Grinda­vík. Fyrr í dag barst til­kynn­ing frá Vega­gerð­inni um að björg­un­ar­sveitir og aðrir við­brags­að­ilar munu ekki geta notað Nesveg fyrr en gert verður við veg­inn. Miklar skemmdir eru á veg­inum til móts við golf­völl­inn í Grinda­vík.

Mest lesið undanfarið ár