Grindvíkingar náðu að koma eigum sínum í var

Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar var á vett­vangi í Grinda­vík í dag og fylgd­ist með Grind­vík­ingum sækja helstu nauð­synjar og verð­mæti á heim­ili sín. Sumir sögðu kær­komið að fá tæki­færi til þess, enda var allur gangur á því hvað rataði með, er fólk þurfti að rýma bæinn í skyndi á föstu­dags­kvöld.

Grindvíkingar náðu að koma eigum sínum í var
Gangandi föt Þessi unga kona, Guðrún Katrín Stein­ars­dóttir, var á meðal þeirra fjöl­mörgu Grind­vík­inga sem þustu í snar­hasti til síns heima í gær að sækja helstu verð­mæti og nauð­synjar. Mynd: Golli

Stór hluti Grind­vík­inga hélt aftur heim í dag, til að sækja nauð­synjar og verð­mæti fyrir sig og fjöl­skyldur sínar. Björg­un­ar­sveitir boð­uðu að rýma ætti bæinn um kl. 16, enda ein­ungis hægt að athafna sig á meðan dags­birta varir.

Kjartan Þor­björns­son ljós­mynd­ari, betur þekktur sem Golli, var á vett­vangi fyrir Heim­ild­ina og fylgd­ist með bæj­ar­búum í Grinda­vík snúa til baka. Mörg voru fegin því að fá tæki­færi til að kom­ast heim að sækja nauð­synjar og verð­mæti, enda var allur gangur á því hvort fólk hefði tæki­færi til þess að taka allt það mik­il­væg­asta með sér. 

Margir íbúar Grinda­víkur voru farnir að heiman á föstu­dag­inn, löngu áður en boð voru send út um að rýma skyldi bæinn, sökum þess að kviku­gangur hafði mynd­ast undir honum. Atburða­rásin var hröð, eins og við eflaust öll munum.

Mæðgurnar Guðrún Katrín Stein­ars­dóttir og Sigrún Stef­áns­dóttir voru á meðal þeirra sem voru fegnar að …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið undanfarið ár