FréttirJarðhræringar við Grindavík

Kallar boð lána­stofn­ana til Grind­vík­inga „sam­fé­lags­lega sið­firrt“

Sigríður María Eyþórs­dóttir, íbúi í Grinda­vík, gagn­rýnir lána­stofn­anir harð­lega fyrir að bjóða Grind­vík­ingum upp á fryst­ingu lána, sem felur í sér að vextir og verð­bætur falla á höf­uð­stól. „Þetta eru ekki kaldar kveðjur til okkar sem horfum inn í óviss­una, þetta er sví­virða,“ skrifar Sigríður í blaða­grein um upp­lifun sína af við­brögðum banka við krísu Grind­vík­inga.
Viðtal

Aukin hætta á ofbeldi ef ras­ismi fær að grass­era

Mikil hætta er á auknu ofbeldi í löndum þar sem nei­kvæð orð­ræða um inn­flytj­endur og hæl­is­leit­endur fær að grass­era, að sögn full­trúa Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Okkar stofnun var stofnuð eftir seinni heims­styrj­öld­ina. Það stríð varð til úr ras­isma og gyð­inga­hatri. Það byrj­aði allt með orðum,“ segir full­trú­inn – Annika Sandlund.

8 mín. lestur

RannsóknLeyndarmál Kýpur

Kýpur hunsar ódæð­is­verk Rússa og þving­un­ar­að­gerðir Vest­ur­landa til að skýla auð­æfum ólíg­arka

Rann­sóknin Leynd­ar­mál Kýpur, leidd af alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna ICIJ, afhjúpar hvernig Kýpur hefur knúið pen­inga­vél stjórn­valda í Kreml með því að flytja fjár­magn fyrir auð­kýf­inga, harð­stjóra og glæpa­menn, þar með talið eftir inn­rás Rúss­lands í Úkraínu.

17 mín. lestur

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Grinda­vík rýmd af örygg­is­á­stæðum – Brenni­steins­dí­oxíð mælist

Grinda­vík var rýmd eftir að nýir gasmælar Veð­ur­stofu Íslands sýndu að brenni­steins­dí­oxíð er að koma upp úr jörðu nær Grinda­vík. Rýmingin er vegna örygg­is­á­stæðna – ekki neyð­ar­á­stæðna, að sögn almanna­varna. Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum segir boð um rým­ingu hafa verið aft­ur­kölluð en þá hafi verið of seint að hætta við.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Unnið að frum­varpi sem á að „tryggja laun í rým­ingu til til­tek­ins tíma“

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra vinnur að gerð frum­varps sem tryggir laun fólks sem starfar á svæði sem þurft hefur að rýma. For­sæt­is­ráð­herra kallar eftir því að fyr­ir­tæki leggi sitt af mörkum en að það muni svo sann­ar­lega ekki standa á stjórn­völdum að tryggja afkomu Grind­vík­inga sem hún telur „vera algjört for­gangs­mál til næstu mán­aða“.

Mest lesið undanfarið ár