Tíska sem er andsvar við vestrænni neyslumenningu

Nýlega var tísku­sýn­ing á hönnun nem­enda á öðru ári í fata­hönnun við Lista­há­skóla Íslands. Þar rann­sök­uðu nem­endur hvernig mætti skapa ný föt úr ósölu­hæfum flíkum með því að nota þekk­ingu og aðferða­fræði hönn­unar. Og beindu þannig sjónum að tísku á Íslandi í ljósi sjálf­bærni. En sýn­ingin er hluti af verk­efn­inu Mis­brigði.

Tíska sem er andsvar við vestrænni neyslumenningu

Katrín María Kára­dóttir, dós­ent í fata­hönnun við Lista­há­skóla Íslands, er upp­hafs­mann­eskja Mis­brigða, sem er verk­efni unnið af nem­endum í fata­hönnun á öðru ári við Lista­há­skóla Íslands. Verk­efnið er í sam­starfi við Fata­söfnun Rauða kross Íslands og á heima­síð­unni www.lhi.is/misbrigdi má lesa að með því séu rann­sak­aðar leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósölu­hæfum flíkum með þekk­ingu og aðferða­fræði hönn­unar. Þannig sé sjónum beint að tísku á Íslandi í tengslum við sjálf­bærni.

Þar má einnig lesa þessa yfir­lýs­ingu: Mis­brigði er and­svar við vest­rænni neyslu­menn­ingu og unnið í sam­starfi við Rauða kross­inn á Íslandi.

Mis­brigði hafa staðið að sam­starfi við Fata­söfnun Rauða kross­ins frá upp­hafi, ásamt Guð­björgu Rut Pálma­dóttur teym­is­stjóra sem sér um fata­verk­efni. „Og er allt í öllu hjá fata­söfn­un­inni en án hennar stuðn­ings hefði ekki orðið neitt úr þessu,“ segir Katrín María, sem er stödd í Japan þegar hún svarar nokkrum spurn­ingum um Mis­brigði – …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár