FréttirÁrásir á Gaza

Utan­rík­is­ráðu­neytið tekur ekki afstöðu gagn­vart kæru Suður-Afríku

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir íslensk stjórn­völd yfir­leitt ekki lýsa yfir stuðn­ingi við ein­stök mál fyrir alþjóða­dóms­stólum nema þau eigi aðild að máli. Það telur þó lík­legt að alvar­leg brot hafi verið framin á alþjóða­lögum, einkum mann­úð­ar­rétti, af beggja hálfu í Palest­ínu. Ráðu­neyt­inu er ekki kunn­ugt um að Palest­ínu­menn­irnir sem mót­mæla á Aust­ur­velli hafi beðið um fund með ráð­herra.
Fréttir

Hjálmari sagt upp störfum: „Tekur lengri tíma en klukku­stund að ganga frá eftir 30 ár“

Fram­kvæmd­ar­stjóra Blaða­manna­fé­lags Íslands, Hjálmari Jónssyni, var sagt upp störfum í dag. Hann segir upp­sögn­ina hafa verið fyr­ir­vara­lausa og að honum hafi verið gert að yfir­gefa svæðið. Upp­sögnin varð að hans sögn í kjöl­far ágrein­ings á milli sín og for­manns BÍ, Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur. BÍ segir að upp­sögn­ina megi rekja til trún­að­ar­brests á milli Hjálmars og stjórnar félags­ins.
Úttekt

Ljúft að losna við umferð­ar­p­irr­ing­inn

„Ég held að allir sem hafi stundað þetta skilji þetta,“ segir einn við­mæl­andi Heim­ild­ar­innar sem finnur á eigin skinni hvað það gerir henni gott að hjóla til og frá vinnu, í stað þess að fara á bílnum. Rann­sóknir benda til þess að það geti verið betra fyrir and­lega líðan fólks að hjóla í vinn­una og ýmsir sem hjóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu virð­ast upp­lifa að svo sé. Þó að veðrið sé stundum skítt er flest betra en að sitja fastur í umferð.

Mest lesið undanfarið ár