ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

Anna segir frá ólýs­an­legu ofbeldi pabba síns og stjúp­móður

Anna Kjart­ans­dóttir ólst upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og ofbeld­is­fullri stjúpu, meðal ann­ars á Höfn í Horna­firði. Faðir hennar situr nú í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni og stjúpa hennar var dæmd fyrir ofbeldið. Engin heim­ild er í lögum til að grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða til að vernda börn í þessum aðstæðum. Anna segir frá mis­þyrm­ingum sem hún mátti þola á heim­il­inu.

Myndband41 mín. lestur

Viðtal

Tapaði öllu en er kom­inn aftur á topp­inn

Sindri Már Finn­boga­son missti fyr­ir­tækið sem hann stofn­aði í hrun­inu, brann út í starfi í Danmörku og flutti til Los Angeles þar sem hann fram­leiddi kvik­mynd sem fékk væg­ast sagt dræma dóma. Hann hafði lítið sem ekk­ert á milli hand­anna þegar hann flutti aftur til Íslands fyrir þremur árum og stofn­aði miða­sölu­vef­inn Tix.is, sem nú er með yfir níu­tíu pró­sent mark­aðs­hlut­deild á Íslandi og kom­inn í útrás í Skand­in­avíu.

Myndband13 mín. lestur

Viðtal

Íslend­ingar eiga erf­ið­ara með að biðja um hjálp

Ása Bjarna­dóttir hefur und­an­farið ár unnið sjálf­boða­liða­störf hjá Hjálp­ræð­is­hernum og þar af hefur hún und­an­farna mán­uði unnið í fata- og nytja­mark­aði Hjálp­ræð­is­hers­ins, Hertex. „Ég er mjög gef­andi mann­eskja að eðl­is­fari og það er mjög gott að gefa af sér og sjá aðra brosa. Mér finnst að maður eigi að gefa meira til sam­fé­lags­ins heldur en að þiggja.“
Viðtal

Aktí­vist­inn sem varð verka­lýðs­for­ingi

Per­sónu­legt áfall varð til þess að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hellti sér á kaf í rétt­læt­is­bar­áttu fyrir sann­gjarn­ara sam­fé­lagi. Hann hefur verið kall­aður lýð­skrum­ari og popúlisti og segir öruggt mál að reynt verði að steypa honum af stóli. Á nýju ári hyggst hann kynna nýjar lausnir í hús­næð­is­málum en segir mik­il­væg­ast af öllu að afnema skerð­ingar í almanna­trygg­inga­kerf­inu. Bar­átt­unni er því hvergi nærri lokið.

Myndband15 mín. lestur

Viðtal

Hafið er bæði fal­legt og grimmt

Þröstur Leó Gunn­ars­son ætl­aði að hætta að leika og fór á sjó­inn. Þá sökk bát­ur­inn og hann var atvinnu­laus, þar til honum var boðið hlut­verk á sviði. Nú leikur hann aðal­hlut­verkið í Hafinu sem verður frum­sýnt annan í jólum, þar sem fjöl­skyldu­mál og kvóti koma við sögu. Að hafa verið við dauð­ans dyr þegar bát­ur­inn sökk mót­aði sýn hans á lífið – og hafið.

Mest lesið undanfarið ár