Óttaðist aldrei um líf sitt Eftir að í ljós kom að Sóli væri með Hodgkins-eitilfrumu­krabba­mein og að það væru um níu­tíu pró­sent líkur á að hann myndi lækn­ast að fullu, seg­ist hann hafa tekið á verk­efn­inu með jákvæðni að leið­ar­ljósi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þakklátur fyrir þessa lífsreynslu

„Þetta var eitt besta ár ævi minnar,“ segir grínist­inn Sól­mundur Hólm Sól­mund­ar­son sem greind­ist með krabba­mein síð­asta sumar og lauk lyfja­með­ferð í nóv­em­ber. Hann er nú laus við krabba­meinið og ætlar að gera veik­indin upp í uppi­stands­sýn­ingu í næsta mán­uði.

„Um mitt síð­asta sumar tók ég eftir kúlu á háls­inum á mér. Af því að ég hafði verið með háls­bólgu átti ég helst von á að þetta væru stækk­aðir eitlar út frá henni. Þess vegna held ég að ég hafi drifið mig strax til læknis, því ég var ekk­ert hræddur. Viðbrögð lækn­is­ins hræddu mig hins vegar því hann hringdi í skurð­lækni hið snarasta og pant­aði blóðprufur, en sagði samt ekki neitt. Ég sat sömu­leiðis þög­ull á lækna­stof­unni og hugs­aði; þetta geta varla verið mjög góðar fréttir.“ 

Fyrr um morg­un­inn hafði Sól­mundur Hólm Sól­mund­ar­son, Sóli, hins vegar sagt við sam­býl­is­konu sína, ann­að­hvort í gríni eða alvöru, að hann væri viss um þetta væri eitlakrabba­mein. „Hvað er að þér maður?“ spurði hún pirruð á móti, því hver grín­ast með að vera með krabba­mein? „En ég hugs­aði með mér að ég ætl­aði bara að ákveða að þetta væri eitlakrabba­mein, því þá yrðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár