Leituðu að öruggasta stað í heimi og fundu hann á Íslandi
Viðtal

Leituðu að örugg­asta stað í heimi og fundu hann á Íslandi

„Þetta er ekki leikur. Að rífa sig upp með rótum og yfir­gefa heima­landið gerir eng­inn nema af nauð­syn,“ segir Abir, sem flúði frá Sýrlandi til Íslands ásamt bróður sínum, Tarek. Útlend­inga­stofnun hefur synjað þeim um vernd en leit aldrei til aðstæðna í Sýrlandi í umfjöllun sinni heldur í Venes­ú­ela, þar sem systk­inin eru fædd en flúðu frá fyrir mörgum árum.
„Ég hélt alltaf að þetta væri svo tímabundið“
Viðtal

„Ég hélt alltaf að þetta væri svo tíma­bundið“

Una Rún­ars­dóttir festi vext­ina á hús­næð­is­lán­inu sína fyrir tveimur árum síðan og á því von á því að þeir losni vorið 2024. Fram til þessa, nýj­ustu frétta um stýri­vaxta­hækk­anir, upp­lifði hún vaxta­hækk­anir og verð­bólg­una sem tíma­bundið ástand og hélt því að væri búið að leysa úr stöð­unni þegar vext­irnir myndu losna. Nú er hún ekki svo viss um að svo verði raunin og hræð­ist því að þurfa selja heim­ilið næsta vor.
Fjármagnið liggur enn í „vösum karlmannanna“
Viðtal

Fjár­magnið liggur enn í „vösum karl­mann­anna“

Mitt í iðu menn­ingar og lista í Berlín er gall­erí sem ber nafn sem hljómar kunn­ug­lega í eyrum Íslend­inga – og er dem­antur fyrir list­unn­endur sem eiga þar leið um. Nú stendur þar yfir sýn­ing Guðnýjar Guð­munds­dóttur en nafna hennar er einmitt eig­andi gall­er­ís­ins, hún Guðný Þóra Guð­munds­dóttir. Heim­ildin hitti þær nöfnur á fal­legum vor­degi í Berlín, meðal ann­ars til að spjalla um mynd­list­ina og hvernig það er að vera kona í þeim karllæga heimi.
„Er búinn að vera að skrifa síðan ég var sex ára“
Viðtal

„Er búinn að vera að skrifa síðan ég var sex ára“

Árangur rit­höf­und­ar­ins Ragnars Jón­as­sonar á alþjóða­sen­unni er svo mikið ævin­týri að fæstir hér gera sér í hug­ar­lund hversu ótrú­legur hann er. Ragnar var nýlega kos­inn vara­for­maður RSÍ og fengur fyrir Rit­höf­unda­sam­bandið að fá inn­sýn í reynslu hans í samn­inga­gerð erlendis og hér heima en hann er jafn­framt lög­fræð­ingur sem hefur lengi starfað í fjár­mála­heim­inum.
Slagurinn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirninga
ViðtalElítusamfélagið á Nesinu

Slag­ur­inn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirn­inga

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi, segir að sveit­ar­fé­lagið sé í áður óþekktri krísu vegna þess að það á ekki lengur lóðir til að selja. Ekki náist sátt um það hvort bær­inn eigi að standa vörð um opin­bera þjón­ustu eða vera lág­skatta­sam­fé­lag með skerta þjón­ustu. Hann lýsir því hvernig minni­hluti hægri sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna hafi mikil völd og áhrif í bænum.
Ásgerður um baráttuna við háværa minnihlutann sem vill rukka 4500 í sund
ViðtalElítusamfélagið á Nesinu

Ásgerður um bar­átt­una við háværa minni­hlut­ann sem vill rukka 4500 í sund

Ásgerður Hall­dórs­dóttir, sem var bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi í 13 ár, segir ákveð­inn arm sjálf­stæð­is­manna á Sel­tjarn­ar­nesi hafa í gegnum tíð­ina beitt sér fyrir því að lág­marka kostn­að­ar­þátt­töku bæj­ar­fé­lags­ins í opin­berri þjón­ustu. Hún nefnir sem dæmi hug­myndir um að rukka bæj­ar­búa um kostn­að­ar­verð fyrir aðgang að sund­laug­inni og leik­skóla­pláss, sem væri um 310 þús­und á mán­uði.
Hættan í Súðavík skjalfest áratug fyrr af sérfræðingi Veðurstofu
ViðtalSúðavíkurflóðið

Hættan í Súðavík skjal­fest ára­tug fyrr af sér­fræð­ingi Veð­ur­stofu

Vinnu­gögn snjó­flóða­sér­fræð­ings sem starf­aði á Veð­ur­stof­unni til 1984 sýna að snjó­flóða­hætta í Súðavík var mun meiri á því svæði sem seinna var sagt hættu­laust en fór undir snjó­flóð árið 1995. Höfundur þess furðar sig á því að yfir­völd hafi sett fram hættu­mat, sem stang­að­ist á við þeirra eigin gögn.
„Það eina sem getur læknað meinið er samúð, samkennd, kærleikur“
ViðtalÓpíóíðafaraldur

„Það eina sem getur læknað meinið er samúð, sam­kennd, kær­leikur“

„Þetta er neyð­ar­á­stand,“ segir Bubbi Morthens, sem hefur sungið í fimmtán jarð­ar­förum tengdum fíkni­efna­neyslu á und­an­förnu ári. Hann segir allt of lítið gert vegna ópíóíða­far­ald­urs­ins sem hér geisar, og allt of seint. Þá gagn­rýnir hann refsi­stefnu í mál­efnum fólks með fíkni­vanda og kallar eftir meiri kær­leika.
Alkóhólismi rændi heilsu hennar vegna meðvirkni
Viðtal

Alkó­hól­ismi rændi heilsu hennar vegna með­virkni

Helga Ósk­ars­dóttir var þjökuð af and­legri og lík­am­legri van­líðan vegna alkó­hól­isma. Samt var það ekki hún sem mis­not­aði áfengi eða önnur vímu­efni, heldur var hún orðin virki­lega veik af með­virkni. Hún var ekki nema fer­tug en leið eins og gam­alli konu. Hún leit­aði sér hjálpar, náði bata og hefur aldrei verið frísk­ari, 73 ára, þriggja barna móðir og sex barna amma.

Mest lesið undanfarið ár