Endurnýtir heilu byggingarnar

„Þið þurfið ekki að flytja inn efni úr öllum heims­hornum, þið þurfið bara að fók­usera á það sem þið hafið hér,“ segir danski arki­tekt­inn Anders Lendager. Lendager var frum­mæl­andi á mál­stofu um sjálf­bærni í mann­virkja­gerð á vegum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Hann hefur end­ur­nýtt heilu bygg­ing­arnar og aðferðir hans hafa vakið tölu­verða athygli.

Endurnýtir heilu byggingarnar
Sjálf­bærni Anders Lendager arki­tekt var frum­mæl­andi á mál­stofu á vegum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar undir yfir­skrift­inni „grænt stökk í mann­virkja­gerð“. Mynd: Maria Albrechtsen Mortensen

Bygg­ing­ar­iðn­aður nútím­ans er einnota. Þegar bygg­ingar hafa þjónað sínum til­gangi eru þær gjarnan jafn­aðar við jörðu. Múrbrot, spýtna­brak og annar muln­ingur er keyrður á haug­ana svo að nýtt geti komið í stað­inn. Þetta finnst danska arki­tekt­inum Anders Lendager ótækt, en hann hefur sér­hæft sig í end­ur­nýt­ingu bygg­ing­ar­efnis. Bygg­ing­ar­að­ferðir hans byggja á því að taka í sundur, frekar en að rífa niður, gamlar bygg­ingar, og end­ur­byggja úr þeim nýjar bygg­ingar. Með þessu tekst honum að draga úr magni úrgangs frá iðn­að­inum, jafn­framt því sem þörf á nýju bygg­ing­ar­efni verður minni. Lendager segir að með slíkum aðferðum sé hægt að draga tölu­vert úr kolefn­is­spori bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins, en sem­ents­fram­leiðsla veldur 7 pró­sent af allri losun koltví­sýr­ings í heim­inum og hvert tonn af fram­leiddu stáli losar um 1.800 kg af Co2.

Auð­lindarað­húsiðÚtveggir Resourcerækkene eru klæddir end­ur­nýttum múr­steins­flekum og gler­kof­arnir á þak­inu eru smíð­aðir úr end­ur­nýttum gluggum. …
Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Eins og segir í greininni er Norður Ameríska sóunarviðhorfið alltof inngróið í okkur hér í þessu innflutnings og verktaka samfélagi. Við erum svo hlíðin buddumenningunni þrátt fyrir botnlausa dýrtíð og stanslausa sóun að það hálfa væri nóg, að framleiða t.d. ál, flytja það út sem dæmi í framleiðslu á gluggum, flytja gluggana inn fyrir byggingariðnaðinn og flytja þá svo út aftur til förgunar þegar svo kallaður líftími byggingar er búin er náttúrulega galið, þetta er því miður okkar þröngsýna viðhorf og hlýðni gagnvart verktökum og heildsölum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár