„Það eina sem getur læknað meinið er samúð, samkennd, kærleikur“

„Þetta er neyð­ar­á­stand,“ segir Bubbi Morthens, sem hefur sungið í fimmtán jarð­ar­förum tengdum fíkni­efna­neyslu á und­an­förnu ári. Hann segir allt of lítið gert vegna ópíóíða­far­ald­urs­ins sem hér geisar, og allt of seint. Þá gagn­rýnir hann refsi­stefnu í mál­efnum fólks með fíkni­vanda og kallar eftir meiri kær­leika.

„Það eina sem getur læknað meinið er samúð, samkennd, kærleikur“
Kær­leikur Bubbi Mortens vill upp­ræta for­dóma í garð fólks með fíkni­vanda og kallar eftir meiri kær­leik. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ungt fólk er að deyja í hrönnum vegna þess að hér geisar ópíóíða­far­aldur – eins og í Ameríku og eins og í Evrópu. Auðvitað hlaut hann að koma hingað. En þetta er alls ekki tekið nógu alvar­lega,“ segir Bubbi Morthens. 

Bubbi greindi frá því á Facebook þann 23. apríl að hann hefði und­an­farið ár sungið yfir ell­efu ein­stak­lingum sem hafi fallið frá vegna fíkni­sjúk­dóms, þar af sex á þessu ári. Síðan þá hafa fjórar jarð­ar­farir bæst við, fjórir ein­stak­lingar til við­bótar fallið frá sem Bubbi hefur sungið yfir. En hann er ekki einn um að syngja yfir ungu fólki sem hefur fallið frá vegna fíkni­sjúk­dóms. Við vitum því ekki hver er raun­veru­legur fjöldi þeirra sem hafa lát­ist af þeim sökum á þessu ári. Við vitum hins vegar að staðan er grafal­var­leg.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ópíóíðafaraldur

Hækka framlag til aðgerða gegn ópíóðafaraldrinum upp í 225 milljónir: „Eitt dauðsfall einu of mikið“
FréttirÓpíóíðafaraldur

Hækka fram­lag til aðgerða gegn ópíóða­far­aldr­inum upp í 225 millj­ónir: „Eitt dauðs­fall einu of mikið“

Heil­brigð­is­ráð­herra lagði í lok apríl fram minn­is­blað um að verja 170 millj­ónum króna á árs­grund­velli í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóða. Á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag var þessi upp­hæð hækkuð um 55 millj­ónir og sam­þykkt að verja 225 millj­ónum í mála­flokk­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár