FréttirMoskumálið

Leyniskjal: Hags­muna­mál Sádi-Arabíu að styrkja íslenska múslima

Sádí-Arabía hugð­ist styrkja Félag múslima á Íslandi þar sem það taldi það vera sér í hag. Í leyniskjali sem Wikileaks hefur birt kemur fram að kon­ungs­ríkið hefði ákveðið að styrkja Menn­ing­ar­setur múslima til kaupa á Ýmis­hús­inu í upp­hafi árs 2013. Salmann Tamimi telur að Sádí-Arabía hafi viljað hafa áhrif á bæði félög múslima á Íslandi.
FréttirÁlver

Rio Tinto vill lækka launa­kostnað eftir að hafa skilað 380 millj­arða króna hagn­aði

Þrátt fyrir gríð­ar­legan hagnað á heims­vísu hefur Rio Tinto sett sér mark­mið um auk­inn nið­ur­skurð í kostn­aði. Þrýst­ingur berst frá höf­uð­stöðvum Rio Tinto til Íslands og veldur hörku í samn­ingum við starfs­fólk álvers­ins í Straums­vík. Rio Tinto vill lík­lega ekki loka álver­inu í Straums­vík en gæti viljað end­ur­semja við Lands­virkjun um raf­orku­verð. Erlendir grein­endur hæla rekstri Rio Tinto og segja að fyr­ir­tæk­inu hafi gengið vel að lækka kostnað og mæla með hluta­bréfum þess til kaups. Þá var hagn­aður þess meiri á fyrsta helm­ingi árs­ins en gert hafði verið ráð fyrir, en Rio Tinto setti sér meiri nið­ur­skurð­ar­kröfur en áður.

9 mín. lestur

FréttirÁlver

Álverið í Straums­vík borgar millj­arða til móð­ur­fé­lags­ins

Álver Rio Tinto Alcan í Straums­vík er í margs konar við­skiptum við móð­ur­fé­lag sitt í Sviss þar sem fjár­munir renna frá Íslandi og til þess. Aukinn kostn­aður getur lækkað skatt­greiðslur. Hagnaður Rio Tinto af sölu fyr­ir­tæk­is­ins á áli að frá­dregnum kostn­aði var ein­ungis um tveir þriðju hlutar af hagn­aði Alcan þegar það fyr­ir­tæki átti álverið í Straums­vík. Framlegð Alcan á tíma­bil­inu 2002 til 2007 var rúm­lega 43 pró­sent en fram­legð Rio Tinto er rúm­lega 30 pró­sent.

Mest lesið undanfarið ár