Dýrara ál Sam­an­burður á fram­legð Rio Tinto og fyrri eig­anda álvers­ins í Straums­vík, kandadíska fyr­ir­tæk­is­ins Alcan, sýnir að fram­leiðsla Rio Tinto er dýr­ari svo um munar. Álverið í Straums­vík er bara eitt af fjöl­mörgum sem Rio Tinto rekur í heim­inum. Mynd: Pressphotos

Álverið í Straumsvík borgar milljarða til móðurfélagsins

Álver Rio Tinto Alcan í Straums­vík er í margs konar við­skiptum við móð­ur­fé­lag sitt í Sviss þar sem fjár­munir renna frá Íslandi og til þess. Aukinn kostn­aður getur lækkað skatt­greiðslur. Hagnaður Rio Tinto af sölu fyr­ir­tæk­is­ins á áli að frá­dregnum kostn­aði var ein­ungis um tveir þriðju hlutar af hagn­aði Alcan þegar það fyr­ir­tæki átti álverið í Straums­vík. Framlegð Alcan á tíma­bil­inu 2002 til 2007 var rúm­lega 43 pró­sent en fram­legð Rio Tinto er rúm­lega 30 pró­sent.

Rio Tinto Alcan á Íslandi, eig­andi álvers­ins í Straums­vík, greiðir ýmis konar gjöld til móð­ur­fé­lags síns í Sviss og á í inn­byrðis við­skiptum við það fyrir upp­hæðir sem sam­tals nema mörgum millj­örðum króna árlega. Um er að ræða greiðslur vegna einka­leyfa, tækni­lega þjón­ustu, sam­eig­in­lega stjórnun auk þess sem fyr­ir­tækið á Íslandi á í umtals­verðum við­skiptum við móð­ur­fé­lagið vegna kaupa á súráli og raf­skautum sem notuð eru í álf­ram­leiðsl­unni í Straums­vík. Þetta kemur fram í svörum frá upp­lýs­inga­full­trúa Alcan á Íslandi, Ólafi Teiti Guðn­a­syni. 

Greiðsl­urnar til móð­ur­fé­lags­ins eru bók­færðar sem kostn­aður við starf­semi Rio Tinto Alcan á Íslandi og því eru greiðsl­urnar sem slíkar ekki skatt­lagðar þegar þær eiga sér stað á milli landa. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur til að mynda fram ríf­lega 13 milljón doll­ara, rúm­lega 1.650 milljón króna, greiðsla sem að hluta rennur til móð­ur­fé­lags Rio Tinto á Íslandi, Alcan Holdings Switzerland. Ólafur Teitur Guðnason, upp­lýs­inga­full­trúi álvers­ins í Straums­vík, útskýrir þessa greiðslu með eft­ir­far­andi hætti: „Hér er um að ræða ann­ars vegar greiðslur til móð­ur­fé­lags fyrir einka­leyfi á ker­tækni, og fyrir tækni­lega þjón­ustu og sam­eig­in­lega stjórnun, og hins vegar ábyrgð­ar­gjald vegna ábyrgðar móð­ur­fé­lags á til­teknum skuld­bind­ingum fyr­ir­tæk­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár