Birgitta skráir sig í Zúisma: Í anda stefnu Pírata

Þingkona er á meðal þeirra sem skráðu sig í nýtt trú­fé­lag í gær. Stjórn trú­fé­lags­ins vill meðal ann­ars fella úr gildi lög um trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Birgitta Jóns­dóttir, kapteinn og þing­maður Pírata, er ein þeirra sem skráði sig í trú­fé­lagið Zuism í gær en hún segir trú­boðið frá­bært fram­tak og mjög í anda stefnu Pírata. Þetta segir hún í Facebook-hópnum Pírata­spjallið í dag. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær fjölg­aði félögum í Félagi Zúista á Íslandi um ríf­lega þús­und á rúmum tveimur viku. Félag Zúista er þá orðið átt­unda stærsta trú­fé­lag lands­ins, fjöl­menn­ari en múslimar á Íslandi, Búddista­fé­lag Íslands og Vottar Jehóva, svo eitt­hvað sé nefnt. 

Yfirtóku deyjandi félag

Stundin fjall­aði um trú­fé­lagið Zuism í apríl síð­ast­liðnum, en þá voru ein­ungis þrír ein­stak­lingar skráðir í félagið. Söfn­uð­ur­inn fékk form­lega skrán­ingu árið 2013 eftir að hafa verið hafnað árið áður. Til stóð að brott­fella trú­fé­lagið því sam­kvæmt lögum þurfa að minnsta kosti 25 lög­ráða 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár