FréttirPlastbarkamálið

Ólöglegt fyrir Sjúkra­trygg­ingar að borga plast­barka­að­gerð­ina: „Ekki króna af íslensku skattfé“

Sjúkra­trygg­ingar Íslands og lækn­ir­inn Paulo Macchiarini áttu í sam­skiptum um kostun plats­barka­að­gerð­ar­innar á Andemariam Beyene. Tómas Guð­bjarts­son sagði í tölvu­pósti að íslenska stofn­unin hefði ákveðið að taka þátt í kostn­að­inum eftir sam­ræður við Karol­inska-sjúkra­húsið. Læknir Sjúkra­trygg­inga segir engan kostnað hafa verið greiddan sem snerti til­rauna­með­ferð­ina. Óvissa um hvort æxlið í hálsi Andemari­ams var ill­kynja.
FréttirPlastbarkamálið

Tómas kann­ast ekki við stað­hæf­ingar um að Andemariam hafi bara átt sex mán­uði eftir ólif­aða

Tómas Guð­bjarts­son læknir kann­ast ekki við að Erít­reu­maður, búsettur á Íslandi, sem plast­barki var græddur í, hafi ein­ungis átt sex mán­uði eftir ólif­aða, eins og ítalskur skurð­læknir heldur fram. Plast­barka­að­gerðir ítalska lækn­is­ins eru orðnar að hneyksl­is­máli sem Tómas flækt­ist inn í.
FréttirSala banka á fyrirtækjum

Lands­bank­inn eign­að­ist landið fyrir tvo millj­arða en seldi svo á einn

Lands­bank­inn borg­aði rúma tvo millj­arða króna fyrir land árið 2012 sem var síðan selt á aðeins millj­arð króna í jan­úar til Bygg­ing­ar­fé­lags Gunnars og Gylfa. Umræðan um Set­bergs­landið kemur í kjöl­far Borg­un­ar­máls­ins þar sem deilt var um eigna­sölu bank­ans. Auk Set­bergs­land­inu var spilda úr Þór­bergs­land­inu í Garðabæ seld með.
Fréttir

Utan­rík­is­ráð­herra veitti kunn­ingja sínum „mjög óvenju­legan styrk“

„Ég þekki Gunnar Braga,“ segir Árni Gunn­ars­son kvik­mynda­gerða­maður sem fékk þriggja millj­óna króna styrk frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem sagður er „mjög óvenju­legur“ af for­manni Félags kvik­mynda­gerð­ar­manna. For­sæt­is­ráðu­neytið styrkir mynd­ina um þrjár millj­ónir til við­bótar, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kemur fyrir í mynd­inni.

Mest lesið undanfarið ár