FréttirFlóttamenn

Rekinn úr landi með fullan maga af sprengju­brotum

Afganskur flótta­maður hefur, eftir ára­langar hrakn­ingar sótt um dval­ar­leyfi á Íslandi, og fengið höfnun. Nú á að flytja hann til Frakk­lands, þar sem hann var áður á göt­unni. Hann þarf á lækn­is­hjálp að halda vegna áverka sem hann hlaut á ung­lings­aldri, þegar upp­reisn­ar­menn í Afganistan reyndu að drepa hann. Þráir hann heit­ast af öllu að fá tæki­færi til að lifa frið­sömu og eðli­legu lífi hér, en ekk­ert bendir til þess að stjórn­völd verði við þeirri bón.
FréttirForsetakosningar 2016

For­seta­fram­bjóð­endur orðnir þrettán

Alls hafa þrettán manns lýst því yfir að þeir muni bjóða sig fram til for­seta í kosn­ing­unum þann 25. júní næst­kom­andi. Þar af hafa sjö bæst í hóp­inn frá því Stundin lét gera könnun á við­horfi almenn­ings til þeirra fram­bjóð­enda sem þegar höfðu stigið fram, auk þeirra sem nefndir höfðu verið í umræð­unni. Hér eru sjö nýj­ustu fram­bjóð­end­urnir:
Fréttir

Lofar Sigmund Davíð og segir Vilhjálm í vand­ræðum með sjálfs­mynd­ina

Þor­steini Sæmunds­syni, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, blöskrar umræða síð­ustu daga um eig­inir eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á Tortola og segir ógæfu­fólk ráð­ast á for­sæt­is­ráð­herra vegna þess að hann hafi kjark og dug sem því skorti. Um leið talar hann um „hjá­rænu­legan Sjálf­stæð­is­þing­mann sem er í vand­ræðum með sjálfs­mynd sína“.

Mest lesið undanfarið ár