Lykilmáli Bjartrar framtíðar í stjórnarsáttmála ekki fylgt eftir með lagasetningu
Fréttir

Lyk­il­máli Bjartrar fram­tíðar í stjórn­ar­sátt­mála ekki fylgt eftir með laga­setn­ingu

Stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að efna ekki til íviln­andi fjár­fest­ing­ar­samn­inga vegna upp­bygg­ingar meng­andi stór­iðju verður ekki fylgt eftir með laga­breyt­ingum. Björt Ólafs­dóttir full­yrðir að í lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga sé „talað um nátt­úru- og umhverf­is­vernd“ og telur að það nægi.
Angela Merkel, leiðtogi hins frjálsa heims
Erlent

Angela Merkel, leið­togi hins frjálsa heims

Ýmsir vilja meina að Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, sé leið­togi hins frjálsa heims nú þegar Donald Trump hefur tekið við völdum í Banda­ríkj­unum. Prests­dóttirin Merkel ólst upp í Austur-Þýska­landi. Hún er mennt­aður eðl­is­fræð­ingur og talar reiprenn­andi rúss­nesku. Við fall Berlín­ar­múrs­ins ákvað hún að láta til sín taka á vett­vangi stjórn­mál­anna. Kansl­ar­inn sæk­ist nú eftir end­ur­kjöri fjórða kjör­tíma­bilið í röð en kom­andi ár gæti orðið afdrifa­ríkt í Evrópu nú þegar popúl­ískir hægri flokkar eru að sækja í sig veðrið í álf­unni.
Ólöf Nordal sýndi einlæga virðingu og naut virðingar þvert á stjórnmálaflokka
Fréttir

Ólöf Nordal sýndi ein­læga virð­ingu og naut virð­ingar þvert á stjórn­mála­flokka

Ólöf Nordal er kvödd af ein­lægum sökn­uði eftir feril og lífs­hlaup sem skap­aði henni virð­ingu og vel­vild. Einn þeirra fyrr­ver­andi þing­manna sem hafa reynslu af störfum Ólafar Nordal lýsir þeirri ein­lægu virð­ingu sem hún sýndi, „ekki þess­ari virð­ingu sem okkur er öllum skylt að sýna, heldur langt umfram nokkrar kröfur þings eða þjóðar“.
Fannst áhugavert að „hinar hagsýnu húsmæður“ sýndu ríkisfjármálum áhuga – biðst afsökunar
FréttirACD-ríkisstjórnin

Fannst áhuga­vert að „hinar hag­sýnu hús­mæður“ sýndu rík­is­fjár­málum áhuga – biðst afsök­unar

Sex konur og þrír karlar ræddu um verk­lag við opin­ber fjár­mál á Alþingi í gær. „Mér finnst áhuga­vert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum, það erum við Njáll Trausti og hinar hag­sýnu hús­mæður sem eru í stórum hópum hér inni,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra.
„Nú er kominn tími til að hrópa sem mest“
ErlentBandaríki Trumps

„Nú er kom­inn tími til að hrópa sem mest“

Ástæða er til að ótt­ast afleið­ingar af ákvörðun Trump um að banna fólki frá vissum löndum að koma til Banda­ríkj­anna, segir Magnús Bern­harðs­son, pró­fessor í Mið­aust­ur­landa­fræðum. Nú þurfi menn eins og hann, hvítir mið­aldra karl­menn í for­rétt­inda­stöðu, fræði­menn við virta háskóla sem hafa það hlut­verk að upp­lýsa og miðla þekk­ingu, að rísa upp. Hann er í hlut­verki sálu­sorg­ara gagn­vart nem­endum og nágrönnum og segir að múslimar upp­lifi sig víða ein­angr­aða og rétt­lausa.

Mest lesið undanfarið ár