Biden byggir brýr
Erlent

Biden byggir brýr

Joe Biden hefur nú gegnt emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna í tæpa tvo mán­uði. Helstu línur í áherslum hans eru farnar að skýr­ast og gamlir banda­menn í Evrópu rétta fram sátt­ar­hönd eftir erfið sam­skipti við Trump-stjórn­ina síð­ustu fjögur ár. Hans bíða þó erfið verk­efni heima fyrir þar sem Covid-far­ald­ur­inn geisar enn, hálf milljón manna hefur látið lífið af völdum sjúk­dóms­ins og hag­kerfið er í sárum.
Verjandi í samskiptum við aðra sakborninga fyrir og eftir morðið
FréttirMorð í Rauðagerði

Verjandi í sam­skiptum við aðra sak­born­inga fyrir og eftir morðið

Stein­bergur Finn­boga­son, fyrr­ver­andi verj­andi Antons Kristins Þór­ar­ins­sonar sem var færður í gæslu­varð­hald vegna rann­sóknar á morði í Rauða­gerði, var sam­kvæmt fjar­skipta­gögnum lög­reglu í sam­skiptum við aðra sak­born­inga í mál­inu fyrir og eftir að morðið var framið. Vegna þessa hefur hann verið kvaddur til skýrslu­töku í mál­inu og getur því ekki sinnt stöðu verj­anda. Stein­bergur hefur áður verið tal­inn af lög­reglu rjúfa mörk verj­anda og aðila.
Elísabet drottning
Mynd dagsins

Elísabet drottn­ing

Elísabet Jök­uls­dóttir er drottn­ing íslenskra rit­höf­unda í ár, eftir að hafa unnið Íslensku bók­mennta­verð­launin fyrir sína fjórðu skáld­sögu Apr­ílsól­ar­kulda fyrr á árinu. „Nafna mín er auð­vitað upp­á­halds hjá Bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni, svo er Harry prins mjög sætur,“ segir Elísabet, þar sem hún situr fyrir í mars­rign­ing­ar­hit­anum í Hvera­gerði. „Hér er gott að vera, tók mig þessa 6 mán­uði sem ég hef búið hér að venj­ast hægum takt­inum eftir að hafa búið vestur í bæ í yfir 30 ár.“
Gott á grillið
Mynd dagsins

Gott á grillið

Þessir naut­gripir nutu veð­ur­blíð­unnar í hádeg­inu upp á Óshól í Hval­firði. Í fyrra seld­ust hér 4.668 tonn af naut­gripa­kjöti og er það í fjórða sæti yfir mest selda kjötið með 17% hlut­deild. Mest er selt af ali­fugla­kjöti, af því seld­ust rúm­lega 9 þús­und tonn, sem gerir 33% hlut­deild. Í öðru sæti er svína­kjöt - en í fyrsta skipti í sög­unni seld­ist meira af svína­kjöti en lamba­kjöti, sem er nú komið í þriðja sæti yfir mest selda kjötið eftir að hafa trónað á toppnum í árhund­ruð.

Mest lesið undanfarið ár