Elísabet Jökulsdóttir er drottning íslenskra rithöfunda í ár, eftir að hafa unnið Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir sína fjórðu skáldsögu Aprílsólarkulda fyrr á árinu. „Nafna mín er auðvitað uppáhalds hjá Bresku konungsfjölskyldunni, svo er Harry prins mjög sætur,“ segir Elísabet, þar sem hún situr fyrir í marsrigningarhitanum í Hveragerði. „Hér er gott að vera, tók mig þessa 6 mánuði sem ég hef búið hér að venjast hægum taktinum eftir að hafa búið vestur í bæ í yfir 30 ár.“
Athugasemdir