• þriðjudagur 24. nóvember 2026
  • 0°C Hálfskýjað 5 m/s
  • Styrkja
  • Skrá inn
  • Áskrift
Skrá inn Fá áskrift
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Fasteignir
  • Hátekjulistinn

Heimildin

  • Blöð
  • Fréttabréf
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Styrkja
  • Gefa áskrift
  • Heimilisblaðið
  • Benda á frétt
  • Um Heimildina
  • Laus störf
  • Auglýsingar
Útlit

© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.

  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
Greinaröð

Mynd dagsins

Páll Stefánsson ljósmyndari tekur eina ljósmynd á dag.
Mynd dagsins

Umhleypinga­samur janúar að baki

Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Vaddúddí, vaddúddí

Jaðrakan segir víst vaddúddí, vaddúddí, en stofn­stærðin á þessum votlendis­fugli er um 70 þúsund varppör. Krían (seinni mynd) er þrisvar sinnum fjölmennari, en hér verpa um 200 þúsund pör. Jaðrakan fer ekki ekki langt til vetursetu, bara til Írlands og suður til Fetla­fjarðar, sem heitir víst líka Biskajaflói eða Bizkaiako Golkoa á basknesku. Krían aftur á móti eyðir 5 mánuðum á ári í ferðalög, en það eru 35 þúsund kíló­metrar frá vetrar­stöðvunum við Suðurskauts­landið til Sand­gerðis þar sem þessi mynd var tekin í morgun.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Ella í Brákar­sundi, Borgarnesi

Trillan Ella, er vorboðinn í Borgarnesi. í aldar­fjórðung hefur hún glatt gesti og gangandi þar sem hún lónir í Brákeyjar­sundi vor og sumar. Ella var byggð í Stykkis­hólmi 1975, skírð eftir Snæfelskum kven­skörungi. Þaðan var hún keypt til Borgarnes af Stór­útgerðar­félagi Mýrar­manna - aðallega til að veiða borgfisk undir Þormóðs­skeri á sérstöku Bessa­leyfi. Núverandi eigandi, Sigurður Halldórsson, ætlar sér stærri hluti með Ellu... að breyta henni í samfélags­stjörnu. Fljótlega mun Ella því fá sérstaka Facebook og Instagram síðu.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Hjóla­þjófatíminn er núna

Þjófnaður reið­hjólum er nú í fullum gangi, vertíðin er frá miðjum apríl og fram í miðjan september að sögn Gunnars Rúnars Svein­bjarnar­sonar, upplýsinga­fulltrúa lögreglunnar. Hann sagði líka að fólk mætti vera duglegra að athuga hvort lögreglan hefði fundið hjólið. Hjól sem hafa verið í vörslu lögreglunar í yfir eitt ár fara á uppboð. Á uppboðinu í fyrra­sumar voru rúmlega hundrað hjól, öll seldust nema tvö barnahjól. Lögreglunni barst 551 tilkynning um hjóla­stuld í fyrra.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Góðleg gimbur í góða veðrinu

Sauðfé á Íslandi hefur fækkað um meira en helming frá því flest var árið 1977. Þá voru 896 þúsund fjár á vetrar­fóðrun en nú í vetur voru þau akkúrat 400 þúsund og hafa þau ekki verið færri síðan 1861. Af öllum þessum fjölda eru hrútarnir aðeins 11 þúsund - en það gera 37 rollur á hvern hrút. Fjöldi sauðfjár nú er litlu meiri en hann var árið 1760 en þá bjuggu hér 43 þúsund manns.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Upp á punkt og prik

Í dag eru upp á dag tíu ár síðan Sviss­lend­ing­arnir Anthony og Claudia komu fyrst til Íslands og tjölduðu þessu þá nýja tjaldi á Tjald­svæðinu í Laugardal. Síðastliðin tvö ár hafa þau búið og starfað á Dalvík, en voru í stuttu stoppi í höfuð­borginni á leið suður og austur hringinn. Það var eitt annað tjald á tjald­svæðinu og tveir litlir húsbílar. Lífið er semsagt að færast í eðlilegt horf... ferðafólk á tjald­svæðinu og grímu­skyldan aflögð frá og með deginum í dag.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Mars í maí

Hönnunar­mars er vorboði, og einn viðburður var í Vesturbæjar­lauginni í dag. Aðal­heiður, Ásgeir Helgi, Emilía og Halla dönsuðu samhæft í nýjum sundfötum frá BAHNS, undir stjórn Ingu Marenar. Það var eitthvað fallegt, jákvætt við það að sjá fulla heita potta af áhorf­endum klappa þegar dansinum var lokið. Svolítið eins og við séum komin fyrir horn í þessum faraldri sem einhvern­veginn ætlar aldrei að ljúka.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Gott í gogginn

Fyrsti veitinga­staðurinn í Reykjavík var opnaður árið 1791 af dönsku ekkjunni, Margrethe Adersdatter Ravn Angel. Þá voru íbúar Reykja­víkur aðeins 358. Fyrir heims­faraldurinn voru rétt rúmlega 200 veitinga­staðir í miðborginni - þeim hafði fjölgað um helming frá aldamótum. Hér í Ingólfs­strætinu bíður Ásgeir eftir að málningin þorni svo gestir og gangandi geti fengið sér eitthvað gott í gogginn, úti í vorsólinni.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Byssupúður­gerðar­staðurinn

Þeystareykir fóru í eyði árið 1873, en fyrr á öldum var þaðan mikill útflutningur af brennisteini til byssupúður­gerðar gegnum Gása og Húsavík. Fyrst voru það Hansa­kaupmenn og Hollendingar sem keyptu brenni­steininn en Dana­konungur tekur sér einkarétt af þessum ábatasömu viðskiptum árið 1560. Lands­virkjun reysti 90 MW jarðvarma­virkjun á Þeista­reykjum árið 2017.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Núll gráður á Grjótnesi

Um miðja síðustu öld var búið á um 30 bæjum á Melrakka­sléttu. Grjótnes (mynd) á Vestur-Sléttu, var mannmargt tvíbýli, og bjuggu þar milli 30 og 40 manns á sumrin þegar mest var. Nú er aðeins búið á tveimur bæjum á Melrakka­sléttunni, en hlunnindi eru áfram nýtt á flestum þessara eyðijarða, eins og reki og æðardúnn. Loft­hitinn á Melrakka­sléttunni í morgun var 0°C.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Harpan og Ómar

Skip­stjórinn Ómar Karlsson (mynd) á dragnótar­bátnum Hörpu HU4, er að gera allt klárt fyrir sumarið og haustið. Hann veiðir eingöngu í Húna­flóanum, og þá aðallega þorsk og ýsu. Það eru bara tveir bátar eftir í útgerð frá Hvamms­tanga, Harpan og Steini HU45.
Páll Stefánsson
Mynd dagsinsPáll Stefánsson

Ölli Krókur, Skvetta og einn á hjóli

Páll Stefánsson
Sýna fleiri greinar

12 af 158

Stofnuð árið 2023 af Stundinni og Kjarnanum
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Leikir
  • Fasteignir
  • Blöð
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Fréttabréf
  • Tilkynningar
  • Um Heimildina
  • Benda á frétt
  • Auglýsingar

Morgunpósturinn

Morgunpóstur Heimildarinnar berst alla morgna og er fyrir öll þau sem hafa áhuga á fréttum og þjóðfélagsumræðu.

Áskrift hefur áhrif

Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Sjá meira
© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.
Áskrift hefur áhrif
Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku.
Ég vil fá áskrift
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.
Heimildin notar vefkökur til að mæla lestur og birta auglýsingar. Sjá nánar.
  • Skrá inn
  • Nýskrá
  • Við sendum þér kóða í tölvupósti: ekkert lykilorð þarf.

    eða

    Skrá inn með lykilorði
    Gleymt lykilorð?
    Halda áfram með Facebook

    Stofna aðgang · Leiðbeiningar

  • Minnst 8 stafir; hvorki algengt lykilorð né eingöngu tölustafir.

    eða

    Halda áfram með Facebook