Litla gosið í Geldingadal gæti gasmengað höfuðborgarsvæðið í dag

Gasmengun gæti náð til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í suð­vest­an­áttum í dag.

Litla gosið í Geldingadal gæti gasmengað höfuðborgarsvæðið í dag

Eldgosið í Geld­inga­dal við Fagra­dals­fjall, skammt norð­austur af Grinda­vík, er lítið hraun­gos á sprungu. Gosið er heppi­lega stað­sett í aflok­uðum dal og minnkar það lík­urnar á mik­illi dreif­ingu hraun­rennslis. Aðeins 2,6 kíló­metrar eru frá goss­taðnum að Suð­ur­strand­ar­vegi.

Almanna­varna­stig hefur verið lækkað úr neyð­ar­stigi niður í hættu­stig, segir í til­kynn­ingu frá Rík­is­lög­reglu­stjóra. „Það er mat vís­inda­manna að gos­s­töðv­arnar séu litlar og lítil fram­rás hefur verið frá því í gær, talið er að gosið ógni ekki mann­virkjum eða byggð.“

Þrátt fyrir smæð­ina leggur gasmengun af eld­gos­inu og er fólk sem er í vind­átt frá gos­inu ráð­lagt að forð­ast óþæg­indi með því að hafa glugga lok­aða og kynda ef með þarf.

Í dag er spáð suð­vest­an­átt á Reykja­nesi sem þýðir að gasmengun getur borist til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Ekki er hætta á ferðum svo fjarri gos­s­töðv­unum. Varað er við því að fólk fari of nálægt eld­gos­inu, ekki síst vegna gasmeng­un­ar­innar.

Um er að ræða fyrsta eld­gosið á Reykja­nesskag­anum frá Sturl­unga­öld, nánar til­tekið frá árinu 1240. Land­helg­is­gæslan mynd­aði gosið úr lofti í morgun og má sjá með­fylgj­andi myndir úr þeirri töku.

Spá um dreif­ingu gos­efnaSamkvæmt spá um dreif­ingu gos­efna á vef Belgings mun gasmengun ber­ast til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Athugið að spána ber að túlka með fyr­ir­vara.
Myndband Gæsl­unnarNýtt mynd­band er komið frá Land­helg­is­gæsl­unni af eld­gos­inu.Land­helg­is­gæslan
Myndband Gæsl­unnarLand­helg­is­gæslan flaug yfir svæðið í morgun.Land­helg­is­gæslan
Gos­bjarm­innPáll Stef­áns­son ljós­mynd­ari tók með­fylgj­andi mynd af gos­bjarm­anum skömmu eftir að eld­gosið hófst.
Umferð að gos­inuReykja­nes­brautin teppt­ist vegna ágangs gosá­huga­manna í gær­kvöldi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár