„Ég bý í Grindavík, það voru eiginlega jarðskjálftarnir sem ýttu mér af stað, þeir eru í einu orði sagt hræðilegir.“ Segir franski leiðsögumaðurinn Jean, sem hefur búið og starfað hér í þrjú ár. „Ég verð kominn heim um miðjan maí, þá ættu þessi ósköp að vera yfirstaðin.“ Það voru suðvestan 27 m/sek þegar hann hélt á heiðina til Þingvalla á degi tvö í ferð sinni umhverfis Ísland. Á morgun er það svo Borgarnes og síðan áfram vestur á Snæfellsnes. Kópasker eftir mánuð.
Athugasemdir