Fyrsta eldgos á Reykjanesskaga í tæp 800 ár

Lítið flæði­gos er yfir­stand­andi í Geld­inga­dal í Fagra­dals­fjalli á Reykja­nesi. „Þetta er kannski ekki ógn­vekj­andi, en þetta er óþægi­lega nálægt,“ segir íbúi í Grinda­vík.

Fyrsta eldgos á Reykjanesskaga í tæp 800 ár
Mynd af gos­inu Mynd Hilmars Braga, ljós­mynd­ara Vík­ur­frétta, sýnir gos­bjar­mann. Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Eldgos er hafið í Geld­inga­dal við Fagra­dals­fjall á Reykja­nesi. Gosið er enn sem komið er lítið hraun­gos með hraun­rennsli til suð­urs. Hraun rennur um 2,6 kíló­metra frá Suð­ur­strand­ar­vegi og eru fyrstu spár almanna­varna á þá leið að gosið nái ekki til sjávar.

Íbúar í Þor­láks­höfn eru beðnir um að halda sig innan dyra, loka gluggum og hækka hit­ann, vegna gasmeng­unar sem getur borist í ein­hverju magni vestur með vind­átt.

Um er að ræða sögu­legan við­burð. Ekki hefur gosið á Reykja­nesi í 780 ár.

Sólný Páls­dóttir, sem býr við jaðar byggð­ar­innar í Grinda­vík, seg­ist hafa verið að horfa á sjón­varpið þegar bjarmi kom upp á himn­inum.

„Við erum alveg róleg. Ekkert drama. En ég er samt að bíða eftir að heyra frétt­irnar. Það er útsýnis­pallur af svöl­unum hjá mér þar sem ég get séð þetta vel. Þetta er í bak­garð­inum mínum, nán­ast.“

Sólný segir síð­ustu vikur hafa verið erf­iðar. Hún upp­lifir óþæg­indi en ekki ógn. „Ég treysti því sem fræði­menn segja að þetta eigi ekki að ógna byggð. Þetta virð­ist ekki ætla að ógna byggð­inni. Ég held að ég þurfi ekki að pakka, eða alla­vega vona ekki. Vonandi er þetta bara smá­spreng­ing og allir öruggir. Það er nátt­úru­lega málið. Miðað við þessa skjálfta hefur maður verið að bíða eftir þessu. Fyrir þá sem upp­lifa þessa skjálfta er þetta svo mikið álag á tauga­kerfið. Þetta er kannski ekki ógn­vekj­andi, en þetta er óþægi­lega nálægt. Ég er ekki hrædd. Maður er kannski meira í smá ójafn­vægi.“

Umferð­ar­öng­þveiti er á Reykja­nes­braut­inni, sam­kvæmt fréttum Rík­is­út­varps­ins, og er talið að þar sé á ferð­inni fólk sem reynir að sjá bjar­mann.

Myndband af eld­gos­inuMeð­fylgj­andi síma­mynd­band barst Stund­inni rétt í þessu.Aðsent
Ljósmynd af gos­inuÖnnur aðsend mynd af eld­gos­inu.
Sviðs­mynd fyrir hraun­rennsliMeð­fylgj­andi sviðs­mynd sýnir eldri spá fyrir hraun­rennsli. Athugið að raun­veru­legur goss­taður er ekki sýndur hér og hraun­rennsli breyt­ist í takt við það.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár