Þessir nautgripir nutu veðurblíðunnar í hádeginu upp á Óshól í Hvalfirði. Í fyrra seldust hér 4.668 tonn af nautgripakjöti og er það í fjórða sæti yfir mest selda kjötið með 17% hlutdeild. Mest er selt af alifuglakjöti, af því seldust rúmlega 9 þúsund tonn, sem gerir 33% hlutdeild. Í öðru sæti er svínakjöt - en í fyrsta skipti í sögunni seldist meira af svínakjöti en lambakjöti, sem er nú komið í þriðja sæti yfir mest selda kjötið eftir að hafa trónað á toppnum í árhundruð.
Athugasemdir