Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur gagnrýnt fyrir ofbeldisdýrkun og villandi kynningu

Íslenskt sjálfs­varn­ar­nám­skeið þar sem konur læra að lifa af hryðju­verka­árásir, mann­rán og heim­il­is­of­beldi, er gagn­rýnt fyrir að nota ofbeldi í aug­lýs­inga­skyni og tengja sig við lög­regl­una, þótt lög­reglan hafni sam­starfi. Í kynn­ing­ar­efni frá nám­skeiðs­höld­urum nota konur meðal ann­ars hríð­skota­byssur, skamm­byssur og hnífa.

Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur gagnrýnt fyrir ofbeldisdýrkun og villandi kynningu

Lög­reglan, sér­sveitin, Stígamót og Bjark­ar­hlíð gagn­rýna ISR Matrix Ísland sem heldur úti sjálfs­varn­ar­nám­skeiðum ætluð almenn­ingi, fyrir að nota ofbeldi og vopn í aug­lýs­inga­skyni, fara með ungar konur til Banda­ríkj­anna til að læra að nota skot­vopn og tengja starf lög­regl­unnar og sér­sveit­ar­innar við starf­semi sína. 

ISR Matrix Ísland er félag stofnað af Jóni Viðari Arn­þórs­syni, fyrr­ver­andi for­manni íþrótta­fé­lags­ins Mjölnis. Jón sinnti for­mann­stöðu í Mjölni þar til átaka kom innan félags­ins árið 2017, sem leiddi til þess að Jón Viðar þurfti að víkja frá rekstr­inum. Eftir það ákvað Jón að beina öllum sínum kröftum að hinu nýstofn­aða félagi. Jón Viðar er jafn­framt yfir Evr­ópu­deild ISR mat­rix.

Boðið er upp á fjögur mis­mun­andi nám­skeið hjá félag­inu: Námskeið í öryggi­s­tökum, neyð­ar­vörn, neyð­ar­vörn fyrir konur og þrek­þjálfun.

Þjálf­arar ISR Ísland eru fjórir tals­ins; tveir starf­andi lög­reglu­menn, þeir Gunnar Scheving og Tómas Helgi Tómasson, systir Jóns, Imma Helga Arn­þórs­dóttir, bar­daga­kappi í MMA, og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár