Yfirstéttarmaður fólksins

Boris Johnson, án efa einn umdeild­asti stjórn­mála­maður Bret­lands síð­ustu ár, tók á dög­unum við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra eftir að Brexit-áætlun Theresu May fór úr bönd­unum. Hans bíður nú það erf­iða verk­efni að leiða þau mál til lykta en Johnson á að baki langan og skraut­legan feril í stjórn­málum og sem óvænt fjöl­miðla­stjarna.

Yfirstéttarmaður fólksins

Það voru aðeins 0,13% breskra kjós­enda sem greiddu hinum nýja for­sæt­is­ráð­herra atkvæði sitt enda var ekki um almenna kosn­ingu að ræða heldur leið­toga­kjör Íhalds­flokks­ins. Inn­an­búð­ar­á­tök um hvernig ætti að útfæra útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu höfðu gert Theresu May ómögu­legt að starfa áfram og Johnson var fremstur í flokki harð­línu­manna sem sök­uðu hana um að lúffa fyrir Brussel í samn­inga­við­ræð­unum. 

Johnson ku vera fyrsti leið­togi Bret­lands sem einnig væri kjör­gengur í for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum, en hann fædd­ist í New York árið 1964 og er því með tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt þó að for­eldrar hans séu breskir. Honum hefur raunar verið líkt við núver­andi Banda­ríkja­for­seta af bæði and­stæð­ingum og stuðn­ings­mönnum sínum.

„Hann er harður af sér og vel gef­inn … þeir kalla hann Trump Bret­lands!“ sagði Donald Trump sjálfur þegar hann frétti af sigri Johnsons. „Hann er eins og Trump með sam­heita­orða­bók,“ sagði Nick Clegg, fyrr­ver­andi leið­togi Frjáls­lyndra demókrata, nokkrum árum áður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár