Enginn veit hvað átt hefur

Það var mörgum áfall þegar fréttir bár­ust af því um allan heim að Notre Dame-kirkjan í París stæði í ljósum logum. Til stendur að safna fyrir end­ur­bygg­ingu hennar en ljóst er að gríð­ar­leg menn­ing­ar­verð­mæti glöt­uð­ust að eilífu í brun­anum. Þetta er þó því miður ekki í fyrsta og senni­lega ekki síð­asta sinn sem mann­kynið tapar stórum og mik­il­vægum hluta af menn­ing­ar­arfi sínum á einu bretti.

Enginn veit hvað átt hefur
Grið­ar­staður margra Stærstur hluti Notre Dame stendur enn og slökkvi­liðs­mönnum tókst að bjarga mörgum munum frá brun­anum, þó að ljóst sé að mikið af menn­ing­ar­verð­mætum töp­uð­ust.

Það er stundum sagt að sagn­fræð­ingar gráti enn brun­ann sem tor­tímdi bóka­safn­inu í Alex­andríu í Egypta­landi en það var eitt merkasta safn heim­ilda sem til var um hinn forna heim. Það er hins vegar ofsögum sagt að safnið hafi fuðrað upp í heilu lagi eins og margir sjá fyrir sér í dag. Það var miklu frekar alda­löng van­ræksla sem varð til þess að smám saman kvarn­að­ist úr safn­inu og bygg­ingin tæmd­ist að lokum af fólki og ritum.

Um hund­rað árum fyrir Krists­burð var svo komið að stjórn safns­ins var almennt í höndum póli­tískra afla en ekki mennta­manna eins og á árum áður. 48 árum fyrir Krist brunnu að minnsta kosti 40 þús­und forn­rit í stór­bruna sem var settur af stað af Júlíusi Sesar og mönnum hans skammt frá bóka­safn­inu. Þeir höfðu kveikt í eigin skipum í höfn­inni í nauð­vörn en misstu stjórn á eld­inum sem geis­aði um alla Alex­andríu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár