Rauði krossinn telur „ákaflega harðneskjulegt“ að koma í veg fyrir fjölskyldusameiningu

Dóms­mála­ráð­herra vill girða fyrir að nán­ustu aðstand­endur kvótaflótta­fólks frá stríðs­hrjáðum svæðum geti fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar.

Rauði krossinn telur „ákaflega harðneskjulegt“ að koma í veg fyrir fjölskyldusameiningu

Rauði kross­inn telur „ákaf­lega harð­neskju­legt“ að dóms­mála­ráð­herra vilji koma í veg fyrir að nán­ustu aðstand­endur kvótaflótta­manna geti fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. Það að geta ekki óskað eftir og fengið sam­ein­ingu við fjölskyldu­með­limi geti haft „veru­leg áhrif á heill og ham­ingju þess sem þegar er hingað kom­inn“. 

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra kynnti nýlega drög að laga­frum­varpi sem fela í sér að útlend­inga­lög­gjöfin er hert til muna og þrengt að rétt­indum hæl­is­leit­enda með ýmsum hætti, meðal ann­ars að rétti flótta­fólks sem Ísland tekur á móti í sam­vinnu við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna og kemur alla jafna frá stríðs­hrjáðum svæðum. Flestir kvótaflótta­mann­anna sem Ísland hefur tekið á móti und­an­farin ár koma frá Sýrlandi þar sem ríkt hefur borg­ara­styrj­öld.

Rauði kross­inn telur að fyr­ir­huguð laga­breyt­ing vinni gegn því mark­miði að kvótaflótta­fólk geti aðlag­ast samfélag­inu, orðið nýtir þjóðfélags­þegnar og fengið tæki­færi til betra lífs. „Stöðugar áhyggjur af afdrifum fjölskyldu­með­lima sem búa mögulega við óbæri­legar aðstæður í heima­land­inu eða í því landi sem þau hafa mögulega flúið til geta komið í veg fyrir slíkt,“ segir í umsögn sam­tak­anna um frum­varps­drög ráð­herra.

„Þá má einnig nefna að íslensk stjórnvöld hafa und­an­farið boðið hingað flóttafólki sem flúið hefur heima­land sitt vegna ofsókna á grund­velli kyn­hneigðar og stefna að móttöku ann­ars slíks hóps á þessu ári. Þessir ein­stak­lingar geta átt börn í heima­land­inu sem þeir hafa ekki fengið að umgang­ast eða hafa ekki getað séð fyrir vegna aðstæðna sinna. Börnin geta mögulega endað í vist hjá vanda­lausum, búið við óöryggi og slæmt atlæti.“

Rauði kross­inn bendir á að börn eiga rétt á að vera ekki skilin frá for­eldrum sínum. „Þá má nefna að fjölskyldu­með­limur getur verið týndur á þeim tíma sem fjölskyldu er boðið hingað til lands af stjórnvöldum en komið fram síðar. Að mati Rauða kross­ins væri það ákaf­lega harð­neskju­legt að leyfa ekki fjölskyldu­sam­ein­ingar í slíkum til­vikum.“

Nánar er fjallað um fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á útlend­inga­lög­gjöf­inni í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár