Sigríður vill herða útlendingalöggjöfina

And­mæla­réttur hæl­is­leit­enda verður tak­mark­aður og Útlend­inga­stofnun veitt skýr laga­heim­ild til að „skerða eða fella niður þjón­ustu“ eftir að ákvörðun er tekin verði frum­varp dóms­mála­ráð­herra sam­þykkt. Einnig verður girt fyrir að nán­ustu aðstand­endur kvótaflótta­manna geti fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar.

Sigríður vill herða útlendingalöggjöfina

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur kynnt drög að laga­frum­varpi til breyt­inga á útlend­inga­lögum sem myndi fela í sér herta útlend­inga­stefnu og þrengja að rétt­indum hæl­is­leit­enda. Mark­miðið er meðal ann­ars að „auka skil­virkni í afgreiðslu mála svo stytta megi máls­með­ferð­ar­tíma“ sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna. Með þessu megi „draga úr kostn­aði rík­is­sjóðs“ vegna útlend­inga­mála.

Á meðal fyr­ir­hug­aðra breyt­inga er lög­fest­ing á hluta reglu­gerðar sem var sett árið 2017. Reglu­gerðin liðk­aði fyrir brott­vísun hæl­is­leit­enda sem leggja fram umsóknir er telj­ast „ber­sýni­lega til­hæfu­lausar“ og tak­mark­aði mjög and­mæla­rétt þeirra.

Eins og Stundin fjall­aði um í fyrra taldi kæru­nefnd útlend­inga­mála að ákvæði í reglu­gerð­inni skorti laga­stoð. Fyrir vikið voru fjöl­margar ákvarðir Útlend­inga­stofn­unar felldar úr gildi, en í flestum til­vikum höfðu hæl­is­leit­end­urnir þegar verið fluttir úr landi þegar kæru­nefndin komst að nið­ur­stöðu um að Útlend­inga­stofnun hefði brotið gegn þeim.  Kæru­nefndin taldi stofn­un­ina hafa brotið vilj­andi gegn rétti hæl­is­leit­enda við afgreiðslu umsókna þeirra, eða eins og það var orðað: „... haft ásetn­ing til þess að ekki færi fram við­hlít­andi mat á þeim sjón­ar­miðum sem stofn­un­inni var skylt að leggja til grund­vallar í ákvörðun kær­anda varð­andi sér­stakar ástæður í skiln­ingi 2. mgr. 36. gr. laga um útlend­inga“. 

Í grein­ar­gerð hinna nýju frum­varps­draga dóms­mála­ráð­herra er vikið að þessu. „Eins og fram hefur komið hefur kæru­nefnd útlend­inga­mála kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að til­tekin ákvæði reglu­gerðar 775/2017 hafi ekki full­nægj­andi laga­stoð og henni því ekki verið beitt að fullu.“ Lausn dóms­mála­ráð­herra er að „færa efni reglu­gerðar nr. 775/2017 að hluta til í lög um útlend­inga.“

Þannig yrði til að mynda lög­fest að þeir sem leggja fram „ber­sýni­lega til­hæfu­lausar umsóknir“ njóti ekki þeirrar rétt­ar­verndar sem felst í 18. gr. stjórn­sýslu­laga um rétt máls­að­ila til að fá frest til að kynna sér gögn máls og tjá sig um það. 

„Lagt er til að skil­grein­ingin taki að mestu leyti mið af fram­kvæmd­inni eins og hún hefur mót­ast hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála,“ segir í grein­ar­gerð­inni. „Þó þykir rétt að hnykkja á til­teknum atriðum umfram það sem fram hefur komið með skýrum hætti í úrskurðum kæru­nefndar, þ.e. að umsókn sem grund­vall­ast á fjar­stæðu­kenndri frá­sögn telj­ist ber­sýni­lega til­hæfu­laus auk umsókna frá rík­is­borg­urum öruggra upp­runa­ríkja sem byggja á að stjórn­völd geti ekki eða vilji ekki veita umsækj­anda vernd og máls­á­stæðum sem sam­ræm­ast að öðru leyti ekki fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um örugg upp­runa­ríki. Rétt þykir að skýra hug­takið í lögum þar sem það hvort umsókn telst ber­sýni­lega til­hæfu­laus hefur umtals­verð áhrif á frek­ari máls­með­ferð.“

Fram kemur að í kjöl­far for­dæma­lausrar fjölg­unar umsókna umsækj­enda frá löndum sem eru skil­greind sem „örugg upp­runa­ríki“ hafi komið í ljós að „íslenskt vernd­ar­kerfi er að mörgu leiti [sic] ber­skjaldað fyrir ásókn ber­sýni­lega til­hæfu­lausra umsókna“. Ráðherra vill að Útlend­inga­stofnun fái laga­heim­ild til að „skerða eða fella niður þjón­ustu við útlend­inga sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd þegar fyrir liggur fram­kvæmd­ar­hæf ákvörðun“ en áður var ein­ungis mælt fyrir um slíkt í reglu­gerð. 

Kveðið er á um ýmis­legt fleira í frum­varps­drög­unum. Til að mynda mun Útlend­inga­stofnun fá heim­ild til að aft­ur­kalla alþjóð­lega vernd kvótaflótta­manna undir vissum kring­um­stæðum og jafn­framt verður fyr­ir­byggt sér­stak­lega að nán­ustu aðstand­endur kvótaflótta­manna geti fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. Mælt er fyrir um breyt­ingar sem eiga að „styrkja stoð Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og árétta að henni skuli beitt þegar þess er nokkur kostur“.

Þá verður einnig sú breyt­ing að útlend­ingum án dval­ar­leyfis verður vísað strax úr landi þegar tekin er ákvörðun sem bindur enda á heim­ild þeirra til dvalar í land­inu, fremur en að þeim sé fyrst gef­inn frestur til sjálf­viljugrar heim­farar eins og tíðkast hefur. 

Þetta er ekki tæm­andi upp­taln­ing á þeim laga­breyt­ingum sem Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra leggur til. Hér má nálg­ast frum­varps­drögin í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár