Trump í slæmum félagsskap

Margir Banda­ríkja­for­setar hafa í gegnum tíð­ina gerst sekir um að styðja and­lýð­ræð­is­leg öfl á erlendri grundu, þrátt fyrir fögur orð um annað. Í seinni tíð hefur þó lík­lega eng­inn gengið eins langt eða verið eins opin­skár með stuðn­ing sinn við ein­ræð­is­herra og núver­andi for­seti Banda­ríkj­anna.

Trump í slæmum félagsskap

„Hann er núna orð­inn for­seti fyrir lífs­tíð. Hann er lífs­tíð­ar­for­seti og hann er frá­bær!“ Svona lýsti Donald Trump stöð­unni í Kína eftir hádeg­is­verð­ar­fund með Xi Jinping, sem var í fyrra skrif­aður inn í stjórn­ar­skrá sem ein­ræð­is­herra til dauða­dags.

Stuðn­ingur við fram­þróun lýð­ræðis í heim­inum hefur lengi verið meintur horn­steinn banda­rískrar utan­rík­is­stefnu, eða allt frá lokum seinni heims­styrj­aldar, þó að vissu­lega hafi það oft verið meira í orði en á borði. Truman for­seti mark­aði stefnu sem er kennd við hann og hafði það mark­mið að vinna gegn útbreiðslu komm­ún­isma með því að styðja sjálf­stæð­is­hreyf­ingar og það sem hann kall­aði frjálsar þjóðir. 

Truman-stefnan mark­aði í raun enda­lok nýlendu­tím­ans og var lyk­ill­inn að gerð Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans sem hóf NATO varn­ar­sam­starfið og er í dag for­senda margs ann­ars alþjóða­starfs. Lýð­ræð­is­legir stjórn­ar­hættir eru til dæmis for­senda inn­göngu í ESB og marg­vís­legt annað sam­starf á alþjóða­vett­vangi hefur lýð­ræð­is­leg við­mið, sem við­ur­lög eru við að brjóta.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár