Eþíóp­íu­menn í Sádí-Arabíu Mynd: Shutterstock

Þrælahald á 21. öldinni

Erlent verka­fólk er marg­falt fjöl­menn­ara en inn­fæddir íbúar í sumum Persaflóa­ríkjum. Í Sádi-Arabíu var indónesísk kona, sem gegndi stöðu eins konar amb­áttar, tekin af lífi fyrir morð á hús­bónd­anum, sem hún segir hafa beitt sig kyn­ferð­is­of­beldi.

Tuti Tursilawati var ein af þeim tugum millj­óna frá heima­slóðum sínum í Suð­austur-Asíu sem lagt hafa land undir fót í leit að atvinnu til að geta séð fjöl­skyldu sinni far­boða. Hún var pöntuð af auð­ugri fjöl­skyldu í Sádí-Arabíu og yfir­gaf heim­ili sitt í Indónesíu til að vinna sem heim­il­is­hjálp í Mekka.

Tuti TursilawatiVar tekin af lífi fyrir að hafa myrt vinnu­veit­anda sinn, sem hún seg­ist hafa gert til að verj­ast nauðgun.

Þar var hún beitt miklu harð­ræði sem end­aði með því að hún drap kúg­ara sinn þegar hann var að nauðga henni. Hún var hand­tekin, dæmd til dauða og höf­uðið hoggið af henni nú á dög­unum. Far­and­verka­fólk er nán­ast rétt­inda­laust í Sádí-Arabíu og mörgum öðrum löndum.

Þetta er því miður ekki eins­dæmi heldur hluti af skipu­lagðri mis­notkun á erlendu vinnu­afli sem má í mörgum til­fellum lýsa sem þræla­haldi á 21. öld­inni. Persaflóa­ríkin eru sér­stak­lega alræmd hvað þetta varðar og yfir­völd í Indónesíu og Fil­ipps­eyjum (þaðan sem flestar konur og stúlkur eru ráðnar sem heim­il­is­hjálp) hafa lengi varað rík­is­borg­ara sína við því að þiggja vinnu í íhalds­sömum arabaríkjum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár