„Við erum ósýnileg“

Pólskir inn­flytj­endur upp­lifa sig oft ann­ars flokks á íslenskum vinnu­mark­aði og telja upp­runa sinn koma í veg fyrir tæki­færi. Stundin ræddi við hóp Pólverja sem hafa búið mis­lengi á Íslandi um reynslu þeirra. Viðtölin sýna þá fjöl­breytni sem finna má innan stærsta inn­flytj­enda­hóps lands­ins, en 17 þús­und Pól­verjar búa nú á Íslandi, sem nemur um 5% lands­manna.

Í byrjun árs­ins 2000 bjuggu rétt rúm­lega þús­und manns á Íslandi með pólskan rík­is­borg­ara­rétt. Á tímum járn­tjalds­ins var flókið mál fyrir Pólverja að flytja til Íslands, en eftir fall komm­ún­ism­ans í Austur-Evrópu tók við hröð aðlögun Póllands í átt til mark­aðs­hag­kerfis. Árið 2004 gekk Pólland svo í Evr­ópu­sam­bandið, fékk aðild að innri mark­aði Evrópu og fullt ferða­frelsi rík­is­borg­ara sinna innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins í kjöl­farið.

Í byrjun árs­ins 2018 bjuggu yfir 17 þús­unds manns af pólskum upp­runa á Íslandi. Pól­verjar eru nú langstærsti hópur inn­flytj­enda á land­inu, marg­falt fjöl­menn­ari en inn­flytj­endur af þeim þjóð­ernum sem næst á eftir koma, frá Litháen og Fil­ipps­eyjum. Pól­verjar eru fimm pró­sent lands­manna, fleiri en sem nemur íbúa­fjölda Garða­bæjar, en fjöldi þeirra end­ur­spegl­ast ekki með sama hætti á hinum opin­bera vett­vangi.

Á hápunkti góð­ær­is­ins fyrir hrun kom fjöldi pól­skra inn­flytj­enda tíma­bundið til að vinna í bygg­ing­ar­iðn­aði og njóta sterks gengis krón­unnar miðað við hið pólska zloty …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár