Mynd: Heiða Helgadóttir

„Sonur minn á mjög mikið í þessari plötu“

Logi Pedro segir að nýja platan hans, Litlir svartir strákar, hafi mót­ast af bata­ferli hans úr þung­lyndi, barn­eignum og sjálfs­mynd hans sem bland­aðs Íslend­ings.

Logi Pedro Stef­áns­son hefur komið víða við í íslensku tón­list­ar­lífi. Aðeins fjórtán ára fór hann að spila með stóra bróður sínum, Unn­steini, í hljóm­sveit­inni Retro Stefson. Hann stofn­aði hljóm­sveit­ina Young Karin með Karin Sveins­dóttur, og er hluti af rapp­hljóm­sveit Sturla Atlas. Auk þess hefur hann pródúserað mikið af vin­sælli rapp- og dæg­ur­lagatón­list síð­ustu ára. Fyrr í ár tók hann stórt skref með því að gefa út sína fyrstu einka­plötu, Litlir svartir strákar, en Logi segir að platan hafi verið skrifuð á mjög erf­iðum tíma í lífi hans.

„Platan er ákvæðin end­ur­fæð­ing fyrir mig,“ segir Logi. „Ég eign­ast strák­inn minn á þessum tíma og ég var til­tölu­lega nýkom­inn úr löngu sam­bandi með barns­móður minni. Það var til­finn­inga­ríkt ferli með mikið af and­legum erf­ið­leikum sem ég var að gera upp. Platan er samin þegar ég lagði af stað í þetta ferli, en lögin eru ekki beinar sögur af einu eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár