Tvisvar sinnum með átta ára millibili hefur barnsfaðir Þóru Bjarkar Ottesen, Gary Clarke, beitt grófu ofbeldi í samskiptum við hana og fjölskyldu hennar. Það gerðist fyrst í kjölfar þess að Þóra tók ákvörðun um að binda enda á sambandið. Þá tók hann hana hálstaki á heimili þeirra og hótaði henni lífláti. Sonur þeirra, tveggja ára, varð vitni að aðförunum sem Þóra þakkar að ekki fór verr, því hann hafi beðið pabba sinn að hætta. Þóra flúði þá heim til foreldra sinna með drenginn. Nokkrum vikum seinna birtist hann þar, braust þar inn og gekk í skrokk á föður Þóru, svo stórsá á honum. Eftir nálgunarbann, umgengni aðra hverja helgi samkvæmt úrskurði sýslumanns og stopul en oft erfið samskipti um átta ára skeið endurtók sagan sig í sumar, þegar Gary skallaði Þóru, fyrir framan son hennar og vini hans á körfuboltaæfingu. Ítrekaðar tilraunir til að fá markvissa aðstoð, hvort sem var …
Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.
Flúði land vegna stöðugrar áreitni fyrrverandi maka
Hvers vegna er réttur þess sem áreitir meiri en þeirra sem eru áreittir í íslensku lagaumhverfi? Að þessu hefur Þóra Björk Ottesen ítrekað spurt sig á undanförnum árum. Hún er farin af landi brott með tíu ára son sinn vegna stöðugs áreitis frá fyrrverandi maka. Hún segir kerfið hafa margbrugðist þeim mæðginum og einkennast af fullkomnu úrræðaleysi.
Athugasemdir