Landið sem auðmenn eiga

Auðmenn, bæði íslenskir og erlendir, hafa keypt upp fjölda jarða um land allt und­an­farna ára­tugi. Stór­tæk­astir eru James Ratcliffe og Jóhannes Krist­ins­son á Norð­aust­ur­landi.

Þó stærstur hluti jarð­næðis á Íslandi sé í eigu íslenskra bænda, ríkis, kirkna og sveit­ar­fé­laga er þó veru­legur hluti í eigu stór­efna­fólks sem, í sumum til­fellum, hefur safnað að sér fjölda jarða að hluta eða í heild. Þá hafa erlendir auð­menn keypt upp jarðir á ákveðnum stöðum á land­inu, ýmist einir eða með við­skipta­fé­lögum sínum.

Lang stór­tæk­astur í þeim efnum er breski auð­kýf­ing­ur­inn James Ratcliffe, sem tals­vert hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum, meðal ann­ars í Stund­inni. Ratcliffe og við­skipta­fé­lagi hans, Jóhannes Krist­ins­son, sem var lengi kenndur við Fons og Iceland Express, eiga saman hátt í fjöru­tíu jarðir að hluta eða heild og eru þær allar á Norður-, Norð­austur- og Aust­ur­landi. Erfitt er að ná að fullu utan um hvert eign­ar­hald þeirra jarða er sökum þess að þeir Ratcliffe og Jóhannes eru ekki …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Auðmenn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár