Sam­starfs­menn og keppi­nautar Helena er þjálf­ari og Michael reynslu­mesti leik­mað­ur­inn – en hann þráir starfið hennar.

Kvenþjálfarinn og sérvitri fótboltamaðurinn

Aðstand­endur sjón­varps­þáttar­að­ar­innar Heima­vallar, Heime­bane, ræða um það sem ger­ist að tjalda­baki.

Stundum mætir raun­veru­leik­inn skáld­skapnum. Eins og þegar ég mæti á hótel í Berlín til þess að taka við­tal við aðal­leik­ara og skap­ara sjón­varps­þátt­anna Heima­vallar – Heime­bane. Skáld­skap­ur­inn er að kona þjálfi norskt karla­lið í efstu deild, en Helena verður í þátt­unum fyrst kvenna til þess. Hún er leikin af Ane Dahl Torp, sem í þátt­unum minnti mig lúm­skt mikið á Elísa­betu Gunn­ars­dóttur, fremsta kven­þjálf­ara Íslands. Svo mætir þarna einnig raun­veru­legur frum­kvöð­ull, John Carew, tæp­lega tveggja metra fram­herji sem var fyrsti blökku­mað­ur­inn til þess að leika með norska lands­lið­inu. Núna er hann hættur að spila og byrj­aður að leika. Og þótt hann leiki fót­bolta­mann þá er mun þyngra yfir per­són­unni en Carew, sem dansar nán­ast þegar hann labbar. Þetta er ekki maður sem fer fram­hjá neinum – nema óheppnum varn­ar­mönnum auð­vitað.

Í þátt­unum leikur hann Michael, 38 ára leik­mann sem er kom­inn aftur heim til Noregs til að ljúka ferl­inum. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár