Herra Baktus Hann heillar ferða­menn og elskar mynda­vél­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sex þúsund fylgja Baktusi á Instagram

Kött­ur­inn Baktus, sem hefur haldið til í Aust­ur­stræti í nokkur ár, er orð­inn vin­sæll meðal ferða­manna í Reykja­vík. Þeir kepp­ast við að taka af honum myndir og birta þær á Instagram. Hörðustu aðdá­end­urnir verða áhyggju­fullir ef þeir fá ekki fréttir af honum í það minnsta einu sinni í viku.

Það er orð­inn fastur punktur á ferða­lögum margra erlendra ferða­manna sem koma til Reykja­víkur að leita uppi kött­inn Baktus. Hann hefur í nokkur ár haldið til í Aust­ur­stræti, þar sem hann röltir yfir­leitt milli Gyllta katt­ar­ins og Icewear, á milli þess sem hann fer á rúnt til að sníkja sér eitt­hvað að borða. Erna Margrét Odds­dóttir, dóttir Hafdísar Þor­leifs­dóttur, eig­anda Gyllta katt­ar­ins, sér um Instragram-síðu Baktusar. „Ég gerði þennan aðgang því það voru svo margir útlend­ingar sem komu í Gyllta kött­inn til að hitta Baktus og spurðu hvort þeir gætu ekki fylgst með honum eftir að þeir færu frá Íslandi. Ég ákvað bara í djóki að gera aðgang,“ útskýrir hún. 

Panikka ef Baktus finnst ekki

Fyrir um það bil ári fór umferðin að aukast tals­vert á síð­unni. Í dag fylgj­ast 6.200 manns með honum og nú er svo komið að Erna Margrét þarf að hafa sig alla við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár