Gunn­hildur Hauks­dóttir Hún dvaldi í tvo mán­uði í Reykja­vík á dög­unum, til að und­ir­búa og fram­kvæma hljóð­verka­gjörn­ing­inn Óróaplott í Gróttu­vita við opnun sýn­ing­ar­innar Earth Homing: Rein­vent­ing Turf Houses / TORF á Sel­tjarn­ar­nesi. Mynd: Hörður Sveinsson

Leitar mennskunnar á flakki um heiminn

Mynd­list­ar­konan Gunn­hildur Hauks­dóttir dvaldi nýverið innan um apa á vernd­ar­svæði í Suður-Afríku, í þeim til­gangi að sækja sér inn­blástur að sköpun marg­slung­ins lista­verks sem ber vinnu­heitið Mennska / ómennska.

Örlaga­vald­ur­innGunn­hildur sá mynd af apastelp­unni Kumquat sem vakti með henni djúpa löngun til að ferð­ast til Afríku.

Alveg síðan Gunn­hildur Hauks­dóttir lá yfir dýra­lífs­myndum sem barn hafði hana dreymt um að fara til Afríku. Það var því draumur sem rætt­ist, þegar henni bauðst nýverið að heim­sækja vernd­ar­svæði í Suður-Afríku þar sem hún fékk að fylgja dýra­at­ferl­is­fræð­ingum eftir meðan þeir skrá­settu ferðir og hegðun apa úti í villtri nátt­úr­unni. Gunn­hildur hafði kynnst dýra­at­ferl­is­fræð­ingnum Louise Barret í Háskól­anum í Let­hbridge í Kanada, fyrir milli­göngu gall­er­í­ista Háskól­ans. Louise, ásamt manni sínum, apa­fræð­ingnum Peter Henzi rekur rann­sókn­ar­stofu á vett­vangi í Eastern Cape í Suður-Afríku, þar sem Vervet-apa­k­ettir eru til athug­unar. „Ég fékk að fylgja vett­vangs­fólk­inu og reyndi að þvæl­ast ekki fyrir því. Það var lagt af stað klukkan fimm á morgn­ana. Þá var farið á svefn­stað apanna og beðið eftir að þeir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár