Sögðust hlæjandi og í kaldhæðni hata karlmenn og eru nú tekin í gegn á netinu

For­sprakkar fyrir rétt­indum trans ein­stak­linga á Íslandi hafa sætt gagn­rýni og upp­nefnum fyrir orð sem látin voru falla í kald­hæðni í hlað­varpi í des­em­ber síð­ast­liðnum, en er fjallað um á DV.is í dag. Alda Villi­ljós og Sæborg Ninja segja frétt DV um að þau telji karl­menn eiga skilið að deyja algjöran útúr­snún­ing.

Sögðust hlæjandi og í kaldhæðni hata karlmenn og eru nú tekin í gegn á netinu
Sæborg og Alda Hlað­varps­þáttur þeirra sner­ist um for­dóma­fulla sýn á femín­isma og átti að vekja fólk til umhugs­unar um for­rétt­inda­stöðu Íslend­inga. Mynd: Facebook

Trans aktí­vist­arnir Sæborg Ninja Guð­munds­dóttir og Alda Villi­ljós sögðu hlæj­andi frá því að þau höt­uðu karl­menn í hlað­varps­þætt­inum Hvað er svona merki­legt, í des­em­ber síð­ast­liðnum. Í kynn­ingu þátt­ar­ins sagði Alda, sem er for­maður rétt­inda­sam­tak­anna Trans-Ísland, það vera „fárán­lega hug­mynd“ að femínistar vildu útrýma karl­mönnum.

Þátt­ur­inn vakti litla athygli, en í dag birt­ist hins vegar frétt á DV.is með fyr­ir­sögn­inni: „Alda og Sæborg segja karl­menn eiga skilið að deyja: „Lítum frekar á þá eins og kakka­lakka““. Undir frétt­inni er skorað á þau að svipta sig lífi, þau kölluð „fígúrur“ og „trukkalessur“ og and­lega veikar. Þá segir einn les­and­inn að Alda sé „glæsi­legt kvik­indi“ með yfir­var­ar­skegg.

Í frétt DV, sem er sú mest lesna í dag, er ekki rætt við Sæborgu Ninju eða Öldu Villi­ljós, en í sam­tali við Stundina segj­ast þau sár og leið vegna máls­ins.

Haft er eftir Sæborgu úr hlað­varp­inu frá því í des­em­ber á DV.is: „Við hötum karl­menn lík­lega meira en þú heldur,“ segir Sæborg við hlust­endur. „Þú van­metur það hatur sem við höfum. Þú heldur kannski að ég vilji skjóta þig í hagla­byssu í and­litið, en það er ekki rétt, ég vil binda þig upp í litlu orku­veit­unni niðri í Elliða­ár­dal og láta þig síga ofan í sýru­bað, tærnar fyrst, ann­ars deyrðu um leið og sýran fer í heil­ann þinn. Ó nei, þú ert ekki nógu góður fyrir það“.

Ekki sagt frá kynningu

Frétt DV.isFréttin var sú mest lesna á vef DV í dag, sem er sá þriðji vin­sæl­asti á land­inu.

Ekki er tekið fram í frétt­inni að bæði Sæborg og Alda hlæja þegar ummælin eru látin falla, enda segj­ast þau hafa látið þau út úr sér í kald­hæðni til að vekja fólk til umhugs­unar. Ekki er heldur tekið fram, í frétt­inni sem segir efn­is­lega að þau hati karl­menn og vilji þá almennt feiga, að orðin komu fram í hlað­varpi undir for­merkjum þess að þar ætti að taka umræðu út frá þeim for­dómum gegn femínistum að þeir hati karl­menn. 

Í upp­hafi hlað­varps­þátt­ar­ins sem DV vitnar til kynnir Alda Villi­ljós þá fyr­ir­ætlun þátt­ar­stjórn­enda að „hlaupa með“ for­dóma­fulla og „fárán­lega“ hug­mynd um að femínistar hati karl­menn:  „Já, eins og Sæborg er búin að segja, þetta kom svona upp frá femínískum hug­myndum um mæðra­veldið, og þessi hug­mynd sko, að femín­ismi snú­ist um það að við viljum útrýma öllum karl­mönnum, sem er svo fárán­leg hug­mynd, þannig að við erum bara svona að taka þá hug­mynd og bara hlaupa með hana.“

Ekki er greint frá þess­ari kynn­ingu í frétt DV.

Í þætt­inum ræða þau kerf­is­lægt mis­rétti sem felst í sam­fé­lag­inu, og getur verið ill­grein­an­legt og und­ir­liggj­andi í gild­is­mati fólks.

Hlusta má á þátt­inn í fullu sam­hengi hér.

„Augljós kaldhæðni“

„Ég hélt ekki að það sem ég hélt að væri aug­ljós kald­hæðni yrði tekið alvar­lega,“ segir Sæborg Stund­inni. „Leið líka, þar sem þetta setur annað fólk í lélega stöðu, fólk sem er að gera mik­il­væga vinnu af heil­indum. Sár þar sem hin nafn­lausa rit­stjórn gerði ekki einu sinni til­raun til að hafa sam­band.“

Alda bætir við: „Já, við höfum sagt í djóki að við og femínistar almennt vilji í raun taka yfir heim­inn, útrýma karl­kyn­inu eins og það leggur sig, halda nokkrum karl­mönnum eftir sem „breeding machines“ og þrælum, og svo fram­vegis. Þessi frétt er rosa mikið að koma höggi á femínista sem þora að tala og taka pláss.“

Hlaðvarpið andsvar við karlhatri femínista

Þau segja að „Hvað er svona merki­legt við það“ sé byggt á hlað­varp­inu „Misandry with Marcia and Rae“. „Pointið með þessu er að taka þessa fárán­legu hug­mynd og láta eins og okkur sé alvara með það,“ segir Alda. „Ég get lofað því að það eru ekki til femínistar sem hugsa svona í alvör­unni—ann­að­hvort er það þá djók eins og hjá okkur eða þeim hefur verið komið fyrir af antí-femínistum. Það er eins og þessi frétt sé unnin beint upp úr Lord Pepe mynd­band­inu.“

Í gær birti íslenski mynd­bands­blogg­ar­inn Lord Pepe mynd­bandið „Non-Binary Lunacy“ þar sem hann klippti til ummæli Öldu og Sæborgar í sundur úr hlað­varpi þeirra. Lord Pepe seg­ist sjálfur vera þjóð­ern­is­sinn­aður og sam­sama sig við hægri væng stjórn­mála.

„Hlað­varpið fædd­ist sem and­svar við orð­ræð­unni um að femínistir hati karla og vilji bara taka af þeim rétt­indi,“ segir Sæborg. „Við vildum líka snerta á ein­hverjum flötum mann­rétt­inda­bar­áttu, svo sem valda­jafn­vægi og fjöl­þættri jað­ar­setn­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Trans fólk

ÚttektTrans fólk

Trans manni vísað úr Laug­ar­dals­laug fyrir að nota karla­klefa

Starfs­fólk Laug­ar­dals­laugar fór fram á að trans mað­ur­inn Prodhi Manisha not­aði ekki karla­klefa laug­ar­innar, jafn­vel þótt mann­rétt­inda­stefna borg­ar­innar taki skýrt fram að það sé óheim­ilt að mis­muna fólki eftir kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu eða kynein­kennum. Formaður mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráðs vill leyfa kyn­vit­und að ráða vali á bún­ings­klefum í sund­laugum.
MyndirTrans fólk

„Ég er ekki kona“

Prodhi Manisha er pankyn­hneigður trans­maður sem jafn­framt er húman­isti utan trú­fé­lags. Þessi ein­kenni hans voru grund­völlur þess að honum var veitt staða flótta­manns á Íslandi. Hann var skráður karl­maður hjá Útlend­inga­stofnun á meðan hann hafði stöðu hæl­is­leit­anda en það breytt­ist þegar honum var veitt hæli. Nú stendur ekki lengur karl á skil­ríkj­unum hans, heldur kona. Það segir hann segir ólýs­an­lega sárs­auka­fullt eftir alla hans bar­áttu. Hann leitar nú réttar síns.

9 mín. lestur

ViðtalTrans fólk

Tog­ara­jaxl­inn sem var kona

Anna Krist­jáns­dóttir var lengi kona í karl­manns­lík­ama. Dreng­ur­inn Kristján klæddi sig í kven­manns­föt og leyndi því að hann var stúlka. Gekk í hjóna­band og eign­að­ist þrjú börn. Laum­að­ist í föt eig­in­kon­unnar. En konan varð á end­anum yfir­sterk­ari og fór í kyn­leið­rétt­ingu. Anna er sátt í dag eftir að hafa sigr­ast á erf­ið­leikum við að fá að lifa sem trans­kona.

12 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu