Eyðileggingin í Eldvörpum

Eldvörp á Reykja­nesi eru ein­stakar nátt­úruperlur sem verið er að raska með jarð­bor­unum. Jarðýtum er beitt á við­kvæmu svæði sem lætur á sjá, svæði sem er á nátt­úru­minja­skrá en engu að síður í nýt­ing­ar­flokki Ramma­á­ætl­unar.

Eyðileggingin í Eldvörpum
Sár í hraun­inu Til­rauna­bor­anir HS Orku í Eld­varpa­hrauni hafa í för með sér óaft­ur­kræft rask á við­kvæmri nátt­úru, í hrauni sem er ein­stakt á heims­vísu. Mynd: Ellert Grétarsson

Á Reykja­nesi, örskammt frá Grinda­vík og Bláa Lóninu, eru stór­merki­leg nátt­úru­fyr­ir­brigði sem kall­ast Eldvörp. Um er að ræða gíga­röð, um það bil tíu kíló­metra langa, sem mynd­að­ist í Reykja­nes­eldum á 13. öld. Eldvörp eru á nátt­úru­minja­skrá, sem og Eld­varpa­hraun sem þau standa í. Er þeim lýst sem smækk­aðri mynd af fræg­ustu gíga­röð lands­ins, Laka­gígum. Við gíg­ana, í hraun­inu sjálfu, fara nú jarð­ýtur um og skilja eftir sig sár í land­inu sem skera í augun. Allt fyrir raf­magn, heitt vatn og hugs­an­legan ágóða orku­fyr­ir­tæk­is­ins HS Orku.

Verk­takar á vegum HS Orku hafa útbúið svo­kall­aðan bor­teig við Eldvörp þar sem búið er að bora til­rauna­holu til að kanna hvort fýsi­legt sé að virkja jarð­varma á svæð­inu. Svæðið er í nýt­ing­ar­flokki Ramma­á­ætl­unar og er heim­ilt að vinna þar allt að 30 MW af raf­orku. Verði nið­ur­stöður til­rauna­bor­ana jákvæðar má búast við að fleiri bor­teigar verði gerðir og fleiri holur bor­aðar, en HS …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár