Þar sem ekkert er eftir nema rústirnar

Kristín Eiríks­dóttir rit­höf­undur ræðir við mexíkóska ljós­myndar­ann Alfredo Esparza, sem segir sög­urnar á bak við myndir sem hann tók á land­svæði sem glæpa­hringir höfðu lagt undir sig.

Ljós­mynd­ar­inn Alfredo Esparza opnar sýn­ing­una Terra nullius – einskis manns land, í Ramskram gall­eríi, Njáls­götu 49, laug­ar­dag­inn 14. apríl klukkan 17.00. Sýningin varir til 20. maí. Á síð­asta ári var Alfredo gestur í Listhúsi, dval­ar­setri lista­manna á Ólafs­firði, og einnig í Fish factory, dval­ar­setri lista­manna á Stöðv­ar­firði. Aðspurður seg­ist hann vera með Íslands-tengt verk í vinnslu, en mynd­irnar sem hann sýnir í Ramskram eru teknar í norð­ur­hluta Mexíkó.

Ég bað hann um að segja mér aðeins frá mynd­unum.

For­eldrar mínir eru bændur og búa í Torréon, í Chiahuahua-hér­aði í Norður-Mexíkó. Pabbi hefur alla tíð unnið við að hirða um pek­an­tré þannig að þegar ég var að alast upp fór ég alltaf með honum í þessi verk. Þegar ég var ung­lingur fór ég í upp­reisn og hafn­aði vit­neskju föður míns og flutti til Mexík­ó­borgar, vildi frekar læra ljós­myndun.

Það var síðan ekki fyrr en upp úr 2012 sem ég fór …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár