Aktívistinn sem varð verkalýðsforingi

Per­sónu­legt áfall varð til þess að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hellti sér á kaf í rétt­læt­is­bar­áttu fyrir sann­gjarn­ara sam­fé­lagi. Hann hefur verið kall­aður lýð­skrum­ari og popúlisti og segir öruggt mál að reynt verði að steypa honum af stóli. Á nýju ári hyggst hann kynna nýjar lausnir í hús­næð­is­málum en segir mik­il­væg­ast af öllu að afnema skerð­ingar í almanna­trygg­inga­kerf­inu. Bar­átt­unni er því hvergi nærri lokið.

Aktívistinn sem varð verkalýðsforingi

„Þú ert alvar­legum veik­indum frá því að verða öryrki og þú ert tveimur launa­seðlum frá því að missa hús­næðið þitt. Það er svo skammt á milli og við pælum ekk­ert í þessum hlutum fyrr en við lendum á vegg. Það er sam­fé­lags­legt vanda­mál sem við búum við hérna á Íslandi að við látum okkur ekki málin varða fyrr en við skellum sjálf á veggnum,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, aktí­vist­inn sem tók við for­mennsku í VR, einu stærsta verka­lýðs­fé­lagi lands­ins, í mars síð­ast­liðnum, mörgum að óvörum. Hann ætlar að halda áfram að berj­ast fyrir mik­il­vægum kerf­is­breyt­ingum, rétt­lát­ari kerfum og rót­tækum aðgerðum í grunn­þjón­ust­unni.

Ragnar Þór skall sjálfur á vegg árið 2007 við erf­iðan vina­missi – missi sem átti eftir að breyta lífi hans til fram­búðar. Ragnar skrif­aði pistil um áfallið fyrr á þessu ári. Vinur hans varð bráð­kvaddur í árlegri veiði­ferð þeirra félaga og tók Ragnar þátt í árang­urs­lausri end­ur­lífgun. En það sem stakk hann mest var að eig­in­kona vin­ar­ins sá ekki fram á að geta staðið undir skuld­bind­ingum þeirra hjóna eftir að síð­asti launa­seð­ill­inn barst inn um lúg­una. „Er það ekki frá­leitt og óboð­legt í vel­ferð­ar­sam­fé­lagi að fjöl­skyld­um gef­ist ekki kost­ur á að tak­ast á við al­var­leg áföll og átak­an­leg­an missi án þess að hafa fjár­hags­legt þrot hang­andi yfir sér frá fyrsta degi?“ spurði Ragnar.

Baráttan hófst með tölvupóstum

Margir hefðu eflaust fyllst van­mætti and­spænis flóknu, ill­skilj­an­legu líf­eyr­is­sjóðs­kerfi, en ein­hverra hluta vegna tví­efldist Ragnar við áfallið og fyllt­ist sterkri rétt­læt­is­kennd sem ýtti honum út í þá bar­áttu sem enn stendur yfir, bar­áttu fyrir betra sam­fé­lagi. „Ég hef oft pælt í þessu,“ segir hann og gerir stutt hlé á máli sínu. „Kannski var þetta bara mín leið til að takast á við þetta, að lenda í þessum aðstæðum. Ég er manískur að eðl­is­fari, spila á nokkur hljóð­færi, og varð að sökkva mér ofan í eitt­hvað.“

Í kjöl­farið sökkti Ragnar sér á kaf ofan í líf­eyr­is­sjóðs­kerfið og almanna­trygg­inga­kerfið. „Þetta er lík­lega eitt flókn­asta kerfi á byggðu bóli, ég leyfi mér að full­yrða það, og það eru mjög fáir sem skilja nákvæm­lega hvernig það virkar með öllum sínum skerð­ingum, frí­tekju­mörkum, sam­spili þess­ara kerfa og víxl­verkun kerf­anna.“ Hann segir kerfin meðal ann­ars ræna fólk sjálfs­bjarg­ar­við­leitn­inni. „Ef það getur borið út blöðin eða póst í klukku­tíma á dag, og fengið ein­hverja þús­und­kalla, þá skerðum við nákvæm­lega þá upp­hæð úr ein­hverjum öðrum vösum. Þannig að við tökum fólkið sem stendur höllustum fæti í okkar sam­fé­lagi og við spörkum í það liggj­andi með ömur­legu kerfi.“

„Kannski var þetta bara mín leið til að takast á við þetta, að lenda í þessum aðstæðum. Ég er manískur að eðl­is­fari.“

Vandinn sé sá að kerfin eru orðin svo flókin að hinn almenni borg­ari skilur þau ekki. „Ef við skiljum ekki kerfin okkar þá eigum við að breyta þeim og við eigum að breyta þeim þangað til við skiljum þau. Ef við skiljum ekki kerfin sem við þurfum að leita til í neyð, sem eiga að vera okkar örygg­is­net, þá eiga þau sér ekki til­veru­rétt.“

Það fyrsta sem Ragnar gerði til að vekja athygli á ósann­girni kerf­is­ins var að skrifa pistla og senda þá áfram í tölvu­pósti. Þó ekki séu liðin nema tíu ár þá voru sam­fé­lags­miðlar ekki orðnir jafn algengir og í dag og bloggið ekki heldur. „Mín leið til 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár